Fréttir
Íslenskur talgervill fyrir farsíma
Hugbúnaðurinn, sem er hægt að nota í farsíma með Symbian stýrikerfi, les það sem birtist á skjá símans. Með þessum hætti hafa þeir, sem ekki geta lesið venjulegt letur, aðgang að flestum aðgerðum farsíma, svo sem símaskrá, SMS-skilaboðum, dagbók og ýmsum stillingum. Mobile Speak er hægt að nota í ýmsum gerðum farsíma frá Nokia og Siemens.
Þá er íslenskur talgervill til staðar í Mobile Speak. Talgervillinn, sem nefndur er Snorri, talar mjög skírt og greinilega, að því er fram kemur í fréttatilkynningu frá Öryrkjabandalagi Íslands. Talgervillinn er framleiddur af Babel/Infovox.
Nokkrir notendur eru þegar byrjaðir að nota hugbúnaðinn og hefur hann gefið góða raun. Arnþór Helgason, framkvæmdastjóri Öryrkjabandalags Íslands, segir að í fyrsta sinn geti hann borið með sér dagbók hvert á land sem er og flett upp í henni með lítilli fyrirhöfn

