Fréttir
Morgunblaðið fær viðurkenningu Öryrkjabandalags Íslands fyrir aðgengi að upplýsingum
Íslenskt dagblað sem er aðgengilegt öllum
Var það Björn Vignir Sigurpálsson, fréttaritstjóri Morgunblaðsins, sem tók við viðurkenningunni við setningu ráðstefnu bandalagsins sem bar yfirskriftina Aðgengi að upplýsingasamfélaginu. Í ávarpi sínu sagði Arnþór Helgason, framkvæmdastjóri Öryrkjabandalagsins, að Morgunblaðið væri eini miðillinn á Íslandi sem hefði gert sérstakar ráðstafanir til þess að bæta aðgengi allra hópa að efni sínu.
"Morgunblaðið er sá fjölmiðill á Íslandi sem hefur um nokkurra ára skeið lagt sig fram um að auka aðgengi að efni blaðsins. Frá árinu 1995 til ársins 2000 var gefin út sérstök tölvutæk útgáfa fyrir blinda og sjónskerta. Sú útgáfa lagðist af vegna hins svo kallaða 2000-vanda, en Morgunblaðið hefur jafnan gætt þess að heimasíða með efni blaðsins væri aðgengileg þeim hópum sem nýta sér ekki venjulegt letur. Þá hefur blaðið einnig gefið út yfirlit frétta á léttlesnu máli fyrir þá sem þess þurfa," sagði Arnþór í ávarpi sínu.

