Fréttir

Áríðandi yfirlýsing

26.11.2003

Öryrkjabandalag Íslands fordæmir harðlega þá fyrirætlun ríkisstjórnarinnar að standa ekki við samning sinn við öryrkja nú á Evrópuári fatlaðra.

Þúsundir öryrkja trúðu því og treystu að óhugsandi væri með öllu að sama ríkisstjórnin myndi freistast til að láta þetta fyrirferðarmikla kosningamál mæta afgangi strax á fyrsta þingi sínu. Öryrkjabandalag Íslands skorar á þá þingmenn sem vísuðu til samningsins við síðustu Alþingiskosningar að láta samvisku sína - og hana eina – ráða för þegar þetta stóra mál verður tekið fyrir á Alþingi. Bandalagið skorar á öryrkja, ættingja þeirra, vini og stuðningsmenn að fylgjast grannt með frammistöðu hvers einasta þingmanns á næstu dögum.

Öryrkjabandalag Íslands



Til baka, Senda grein, Prenta greinina

 





þetta vefsvæði byggir á eplica. eplica vefurvefur - nánari upplýsingar á heimasíðu eplica.