Fréttir
Breytingar á almanntryggingum samkvæmt frumvarpi
Á Alþingi 19. febrúar síðastliðinn lagði Jóhanna Sigurðardóttir, félags- og tryggingamálaráðherra, fram frumvarp um breytingar á lögum almannatrygginga nr. 100/2007
Á þingfundi 21. febrúar var frumvarpið samþykkt til 2. umræðu og vísað til félags- og tryggingamálanefnda Í frumvarpinu er meðal annars gert ráð fyrir að;
- tekjutenging maka verði afnumin
- frítekjumark upp á 90.000 kr. verði sett á fjármagnstekjur
- aldurstengd uppbót verði 100% til 18-24 ára í stað 18-19 ára eins og lögin eru í dag, og hlutfall af bótum miðað við aldur hækkar lítið eitt á aðra aldurshópa
- aðgerðir til að draga úr of- og vangreiðslum
Í athugasemdum með frumvarpinu kemur einnig fram að verkefnastjórnin sem skipuð var í október af félags- og tryggingamálaráðherra vinni áfram að því markmiði að einfalda almannatryggingakerfið. Um er að ræða heildarendurskoðun almannatryggingalöggjafarinnar og er verkefnastjórninni ætlað að skila samræmdum tillögum fyrir 1. nóvember 2008.
Ítarlegri upplýsingar á heimasíðu TR

