Fréttir
Nýr framkvæmdastjóri ÖBÍ
Lilja Þorgeirsdóttir hefur verið ráðin framkvæmdastjóri til Öryrkjabandalags Íslands.
Lilja er með meistaragráðu í opinberri stjórnsýslu, MPA frá Háskóla Íslands 2007 og Fíl.kand.próf í félagsfræði frá Stokkhólmsháskóla 1988, með áherslu á mannauðsstjórnun, fræðslu og starfsþróun.
Lilja hefur meðal annars starfað sem verkefnastjóri á skrifstofu mannauðsmála LSH frá 2007, á starfsmannasviðið HÍ 1998-2007 og á árunum 1989-1999 sem félagsmálafulltrúi Sjálfsbjargar landssambands fatlaðra.
ÖBÍ óskar Lilju velfarnaðar í starfi.

