Fréttir
Varnarsigur ÖBÍ í lífeyrissjóðsmáli.
ÖBÍ stefndi Gildi lífeyrissjóði fyrir hönd Margrétar, eins þeirra lífeyrisþega sem fengu bréf um "lækkun eða niðurfellingu" örorkulífeyrisgreiðsla í ágúst 2007. Alls var þar um að ræða um 1.600 einstaklinga sem fengu slík bréf frá 9 lífeyrissjóðum.
Fyrr í dag var dómur kveðinn upp í prófmáli ÖBÍ f.h. Margrétar gegn Gildi. Dómsorð voru þessi:
„Stefnda, Lífeyrissjóðnum Gildi, er óheimilt að draga frá örorkulífeyri stefnanda, Margrétar Ingibjargar Marelsdóttur, þann örorkulífeyri og tekjutryggingu er hún fær frá Tryggingastofnun ríkisins. Stefndi greiði stefnanda 700.000 krónur í málskostnað."
Í dómnum kemur meðal annars fram að ráðuneytisstjóri hafi verið vanhæfur að staðfesta breytingar á samþykktum lífeyrissjóðanna vegna setu í stjórn Söfnunarsjóði lífeyrisréttinda og þar með allir hans undirmenn í ráðuneytinu. Eða eins og segir í dómnum;
„Vegna stöðu sinnar sem formaður stjórnar Söfnunarsjóðs lífeyrisréttinda var Baldur Guðlaugsson vanhæfur til að fjalla um efnislega sambærilegar breytingar og gerðar voru á samþykktum Söfnunarsjóðsins hjá öðrum lífeyrissjóðum, sbr. 6. tl. 1. mgr. 3. gr. laga nr. 37/1995. Á sama hátt voru allir undirmenn hans í ráðuneytinu vanhæfir til meðferðar málsins, sbr. 5. tl. 1. mgr. 3. gr. laganna."
Á þessari stundu er ekki vitað hvort Gildi lífeyrissjóður muni áfrýja málinu en til þess hefur hann rétt innan þriggja mánaða frá deginum í dag. Verði dómnum ekki áfrýjað ber Gildi að leiðrétta greiðslur til þeirra örorkulífeyrisþega sem fengu skerðingu eða niðurfellingu á rétti sínum hjá þeim. Sama á við um aðra þá lífeyrissjóði sem sendu samskonar bréf um skerðingu eða niðurfellingu örorkulífeyrisgreiðslna til sinna sjóðsfélaga.
Dómurinn kemst þó ekki að því að samþykktum lífeyrisþega megi ekki breyta héðan í frá. Orðrétt segir,
„Hann (dómurinn útsk.ÖBÍ) tekur ekki til þeirra atburða er síðar munu gerast og þeirra breytinga er síðar kunna að taka gildi á samþykktum stefnda eða lagareglum."
Lögmaður ÖBÍ í þessu máli var Ragnar Aðalsteinsson.
Tengill á dóminn á heimasíðu Héraðsdóms Reykjavíkur

