Fréttir
Nýr starfsmaður á skrifstofu ÖBÍ.
Þórný mun gegna almennum ritarastörfum fyrir formann og framkvæmdastjóra auk annarra verka.
Þórný er menntaður tækniteiknari og táknmálstúlkur, einnig hefur hún starfað sem rittúlkur. Hún bjó á Sólheimum í Grímsnesi í 4 ár og sá þar um verslunina Völu á staðnum. Hún hefur unnið mikið með Leikfélagi Sólheima og leikstýrði síðustu 2 sýningum leikfélagsins. Undanfarin ár hefur aðalstarf Þórnýjar verið sem rittúlkur á eigin vegum undir nafni Hraðra handa.
Boðið upp á táknmálstúlkun á skrifstofu ÖBÍ
Þeir aðilar sem þurfa að leita til skrifstofu bandalagsins, geta nú að nýju, fengið táknmálstúlkun í viðtölum. Nauðsynlegt er að panta viðtalstíma fyrirfram í síma 530-6700.
ÖBÍ býður Þórnýju hjartanlega velkomna til starfa og óskar henni velfarnaðar í komandi verkefnum.

