Fréttir

Þröngt í búi íslenskra öryrkja erlendis

14.10.2008

Síðast liðna daga hefur töluvert verið haft samband við starfsfólk ÖBÍ af íslenskum öryrkjum sem búa erlendis. Þeir bera sig illa þar sem í mörgum tilfella hafa greiðslur frá TR ekki borist þeim enn.

Allir örorkulífeyrisþegar sem búsettir eru erlendis eru háðir því að hægt sé að millifæra greiðslur Tryggingastofnunar, því bætur frá TR eru greiddar inn á bankareikning viðkomandi í bankastofnun hérlendis. Sú bankastofnun hefur svo fyrirgreiðslu um að koma greiðslunni á sínu gengi til bankastofnunar í því landi sem öryrkinn býr í og hefur viðskipti við.

Í einu tilfella sem ÖBÍ fékk fregnir af var aðilinn búsettur í Svíþjóð og búin að fá sína greiðslu. Þar höfðu 50.000 íslenskar krónur verið um 5.000 kr. sænskar fyrir hrun en nú hafði sá aðili í höndum rétt rúmar 2.800 sænskar krónur og sá ekki hvernig næðist að framfleyta sér.

Á heimasíðu TR má finna upplýsingar um að 484 öryrkjar séu skráðir erlendis að lang mestu leyti í Skandinavíu. Íslenskir öryrkjar sem búa í þeim löndum munu í mörgum tilfella eiga möguleika á að leita sér aðstoðar í félagslega kerfinu þar.

Nánri upplýsingar um réttarstöðu á heimasíðu TR.



Til baka, Senda grein, Prenta greinina

 





þetta vefsvæði byggir á eplica. eplica vefurvefur - nánari upplýsingar á heimasíðu eplica.