Fréttir
Þín minning lifir ...
Guðmundur Magnússon, formaður ÖBÍ, lagði krans á tröppur þinghússins til að vekja athygli á því að niðurbrot velferðarkerfisins er hafið.
Á borða kransins stóð, Þín minning lifir. Niðurbrot velferðarkerfisins er hafin. ÖBÍ
ÖBÍ stóð fyrir þessum gjörningi til að minna á ályktun þá sem samþykkt var af aðalstjórn ÖBÍ þann 20. janúar sl., þar sem m.a. var mótmælt þeim „...kjaraskerðingum sem felast í því að aftengja lög er tryggja hækkun lífeyris miðað við vísitölu en halda verðtryggingu lána..." einnig var mótmælt „...þeirri breytingu á lögum er gera Úrskurðarnefnd almannatrygginga kleift að beita aðfararhæfi gegn þeim er Tryggingastofnun ríkisins telur sig hafa ofgreitt."
Auglýsingin í Fréttablaðinu og Morgunblaðinu, laugardaginn 23. janúar.

