Fréttir

Orlofshús í boði - gott hjólastólaaðgengi

3.5.2010

Þroskahjálp á Suðurlandi býður orlofshús sitt á Selfossi til útleigu og Skjaldarvík í Eyjarfirði kynnir gott aðgengi í gistingu.

Lambhagi á Selfossi

Þroskahjálp á Suðurlandi býður félagsmönnum í Öryrkjabandalagi Íslands, Þroskahjálp og Umhyggju og hliðstæðum samtökum upp á orlofshúsið Lambhaga á Selfossi. Gott aðgengi fyrir hjólastóla. Sjúkrarúm. Húsnæðið sem er með 4 herbergjum er leigt í viku í senn. (frá föstudegi kl.16.00-föstudag kl.13.00) og kostar kr. 20.000 fyrir vikuna. Nánari upplýsingar hjá umsjónarmanni, Sigurborgu Ólafsdóttur, s. 486-5537 eða 866-1354.

Kynningarbæklingur um orlofshúsið Lambahaga (pdf-form 307 kb)

Skjaldarvík - 5 mínútna akstur frá Akureyri.

Ferðaþjónustan Skjaldarvík býður einstaklega gott aðgengilegt húsnæði fyrir fatlaða (húsnæðið var áður elliheimili). Skjaldarvík er aðeins 5 mínútna akstur frá Akureyri.

Nánar upplýsingar um húsnæðið á heimasíðu Skjaldarvíkur



Til baka, Senda grein, Prenta greinina

 





þetta vefsvæði byggir á eplica. eplica vefurvefur - nánari upplýsingar á heimasíðu eplica.