Fréttir
Uppbót á lífeyri vegna lyfjakostnaðar ekki lengur talin til tekna
Á heimasíðu félags- og tryggingamálaráðherra, kemur fram að Árni Páll Árnason ráðherra, hefi ákveðið að hætt verði að telja uppbót á lífeyri vegna lyfjakostnaðar til tekna við útreikninga á rétti fólks til lágmarksframfærslutryggingar.
Uppbótargreiðslur sem einstaklingar fá til að standa straum af lyfjakostnaði munu því ekki leiða til þess að lágmarksframfærslutrygging þeirra lækki. Um 560 einstaklingar munu hafa hag af þessari breytingu.
Árni Páll segir að ábendingar Öryrkjabandalags Íslands um þörf fyrir þessa breytingu hafi verið réttmætar.
Tryggingastofnun ríkisins hefur verið upplýst um breytinguna sem tekur þegar gildi.
Fréttin í heild á heimasíðu félags- og tyggingamálaráðuneytis (opnast í nýjum vafra)

