Fréttir

Læt engan annan taka ábyrgð á mér

21.11.2001

„Ég ætla ekki að gefast upp fyrr en þessar reglur verða afnumdar,“ segir Anna Geirsdóttir, heimilislæknir og borgarfulltrúi, sem er ekki sátt við starfsreglu Flugleiða sem mælir fyrir um að einstaklingar í hjólastól hafi með sér fylgdarmann þegar þeir ferðast með vélum fyrirtækisins.

„Ég sætti mig ekki við þetta. Ég á eftir að ferðast margoft til viðbótar. Flugleiðir eru með einokunaraðstöðu þannig að ég hef ekkert val.“

„Þeir notuðu ekki orðalagið að það þyrfti að borga undir fylgdarmann en samkvæmt þessum reglum sem þeir eru með liggur það í orðanna hljóðan. Þeir sögðu að ég yrði að gefa upp ábyrgðarmann inni í flugvélinni. Ég ferðast ein þannig að hvern á ég að gefa upp? Ég er búin að vera í hjólastól í 20 ár og búin að ferðast með ýmsum flugfélögum. Ég er að fara á læknaráðstefnu í Mexíkó og búin að fá flugmiðann frá British Airways sem gerðu engar athugasemdir.“ Anna segist aldrei hafa lent í þessu áður. „Þess vegna hafði ég samband við Öryrkjabandalagið til að spyrja þá hvort þeir vissu eitthvað um þetta. Flugleiðir skýla sér svo á bak við einhverjar alþjóðlegar reglur sem enginn kannast við og stangast á við reglur IATA (Alþjóða flugflutningasamtakanna) sem eru til að rýmka rétt fatlaðra og koma til móts við þarfir þeirra.“

Anna þvertekur fyrir að taka fylgdarmann með sér. Það kemur þó ekki í veg fyrir að hún komist út núna. „Ég er búin að fá farseðilinn minn. Ég gat fengið hann í þetta skipti en það er undantekning og reglurnar gilda áfram", segir Anna og telur að Flugleiðir hafi ekki þorað öðru en að láta henni eftir að Öryrkjabandalagið var komið í málið. „Ég má fara út en ætli ég komist heim aftur?“

Að mati Önnu er hér um mannréttindabrot að ræða og fötluðum ekki sýnd sú virðing sem þeir eiga skilið. „Við sem erum eitthvað hreyfihömluð erum algjörlega ábyrg fyrir okkar eigin ferðum. Ég læt engan annan taka ábyrgð á mér.“



Til baka, Senda grein, Prenta greinina

 





þetta vefsvæði byggir á eplica. eplica vefurvefur - nánari upplýsingar á heimasíðu eplica.