Fundargerð aðalfundar ÖBÍ 1999
38. aðalfundur Öryrkjabandalags Íslands var haldinn í Borgartúni 6 laugardaginn 6. nóvember 1999 kl. 9.30 árdegis. Fundinn sóttu 64 fulltrúar og 13 starfsmenn og gestir.
1. Fundarsetning.
Formaður ÖBÍ Haukur Þórðarson setti fundinn og bauð gesti velkomna til 38. aðalfundar Öryrkjabandalags Íslands.
2. Kjör fundarstjóra og fundarritara.
Haukur lagði til að Þórir Þorvarðarson og Sigríður Kristinsdóttir yrðu fundarstjórar og Kristín Jónsdóttir og Helgi Hróðmarsson yrðu fundarritarar og var það samþykkt.
3. Skýrslum fylgt stuttlega úr hlaði.
1) Yfirlit formanns ÖBÍ.
Eins og á síðasta aðalfundi höfðu skýrslur verið sendar tímanlega út til allra fulltrúa. Því var skýrslunum aðeins fylgt stuttlega úr hlaði af ræðumönnum.
Í skýrslu sinni kom Haukur inn á tvo merkisdaga í desember á liðnu ári: 3. desember, þann dag hafa Sameinuðu þjóðirnar helgað fötluðum.
Þann dag var talsvert fjallað í fjölmiðlum um málefni fatlaðra, sérstaklega í Morgunblaðinu. Þar var ágætt yfirlit, yfirlýsing og greinargerð, um stöðuna í lífskjörum öryrkja. Einnig birtist í sama blaði grein eftir framkvæmdastjórann um þessi mál.
Einnig sagði Haukur frá 50 ára afmæli Mannréttindayfirlýsingar S.Þ. sem samþ. var 10. des. fyrir 50 árum síðan í París.
Afmælisdagskrá var haldin af því tilefni í Tjarnarsal Ráðhússins þann dag. Hann gat einnig samstöðuhátíðar ÖBÍ sem haldin var 11. desember í Reykjanesbæ.
Haukur minnti á nauðsyn þess að halda vöku sinni varðandi Lottóið þar sem það er eina tekjulind bandalagsins, sérstaklega í ljósi þess að samkeppni ríkir um þessa tekjulind.
Haukur fjallaði einnig um óvissuna um framgang yfirfærslu málefna fatlaðra frá ríki til sveitarfélaga. Nauðsynlegt er að tryggja að sveitarfélögin hafi nægilegt bolmagn til að axla þau verkefni sem yfirfærslan hefur í för með sér. Og í þriðja lagi ræddi Haukur nauðsyn þess að halda vöku sinni varðandi erlend samskipti. Í því sambandi benti Haukur sérstaklega á aðild Öryrkjabandalagsins að Evrópusamstarfi. Einnig minntist hann á aðild Öryrkjabandalagsins að RI, sem ÖBÍ hefur átt aðild að í meira en þrjá áratugi. Haukur benti á að peningar sem lagðir eru í erlend samskipti skili sér til baka þegar til lengri tíma er litið.
2) Yfirlit framkvæmdastjóra ÖBÍ.
Helgi Seljan framkvæmdastjóri Öryrkjabandalagsins flutti yfirlit sitt.
Liðið starfsár Öryrkjabandalagsins ber flest merki síðustu ára í farteski sínu en einnig aðra og ólíka atburði. Hann sagði að umsvifin færu alltaf vaxandi í raun.
Fréttabréf Öryrkjabandalagsins kemur nú til u.þ.b. 18 þús. manna. Hann sagði að við öll bærum ábyrgð á því og innihaldi þess og hvatti fólk til að skrifa í það. Tímaritið með meira en tvöhundruð blaðsíður ár hvert verður eðlilega að sinna margslungnu hlutskipti.
Helgi ræddi frumvarp til laga um félagsþjónustu sveitarfélaga, en hann hefur átt sæti í laganefndinni vegna yfirfærslu málefna fatlaðra frá ríki til sveitarfélaga. Eftir nær 40 tímafreka fundi verður bandalagið að halda sérstaka ráðstefnu um frumvarpið um félagsþjónustu sveitarfélaga í byrjun næsta árs.
Frumvarpið hefur ekki enn verið lagt fram á Alþingi. Fyrirvarar eru enn nokkrir um innihald frumvarpsins. Fyrirvararnir munu fylgja frumvarpinu inn á Alþingi. Taldi Helgi að frumvarpið tæki ekki gildi fyrr en í fyrsta lagi 1. jan. 2001.
Öryrkjabandalagið hefur snúið sér til ýmissa aðila varðandi ferlimál s.s. félagsmálaráðuneytisins, umhverfisráðuneytisins, Sambands ísl. sveitarfélaga og Skipulags ríkisins.
Í lok yfirlitsins fór Helgi með eftirfarandi eigin vísu:
Litið yfir liðna tíð
lítil eftirtekjan reynist.
Erjað mun þó ár og síð
eitthvað bitastætt þar leynist.
3) Samstarfsverkefni og erlend samskipti.
Helgi Hróðmarsson starfsmaður ÖBÍ flutti skýrsluna.
Helgi byrjaði að fjalla um erlend samskipti. Fram kom að Öryrkjabandalagið hefði nýlega tekið við formennsku í HNR (“Handikaporganisasjonenes Nordiska Råd”). Þar er um að ræða samstarfsvettvang norrænu öryrkjabandalaganna. Auk þess hefur ÖBÍ tekið við formennsku í NFR “Nordisk Förening för Rehabilitering” sem eru norræn samtök sem fjalla um endurhæfingu og skyld málefni á Norðurlöndum. Að öðru leyti vitnaði Helgi í framlagða skýrslu.
Helgi fjallaði einnig um samstarfsverkefni Öryrkjabandalagsins og Þroskahjálpar. Hann minntist í því sambandi á endurútgáfu Meginreglanna á Íslensku. Ákveðið var að veita kr. 500.000.- styrk sem barst frá félagsmálaráðuneytinu í þetta verkefni. Helgi nefndi einnig samstarf við ÍTR (Íþrótta- og tómstundaráð). Út úr því samstarfi kom aukin umfjöllun um tilboð til fatlaðra ungmenna. Þá styrkir borgin starfrækslu reiðnámskeiða sem haldin eru í Víðidal af Reiðskólanum Þyrli.
Helgi fjallaði einnig um yfirfærslu málefna fatlaðra frá ríki til sveitarfélaga og þá vinnu sem samtökin höfðu lagt í það mál.
Undirbúningur fyrir alþingiskosningar s.l. vor var stór þáttur í starfi samtakanna s.l. vetur og fram að kosningum. Helgi minntist einnig á þátttöku ÖBÍ og Þroskahjálpar í nefnd um félagsmál sem sett var á stofn af félagsmálaráðherra. Að lokum nefndi Helgi hjálpartækjasýningu sem áætlað er að halda 11. – 13. febrúar n.k. í Perlunni.
4) Skýrsla lögfræðiþjónustu ÖBÍ.
Jóhannes A. Sævarsson lögfræðingur flutti skýrsluna.
Eins og áður hefur lögfræðiþjónusta verið fullbókuð og 273 viðtöl hafa verið hjá lögfræðiþjónustunni s.l. ár sem er nánast sami fjöldi og undanfarandi ár.
Jóhannes ræddi um að nýtt fyrirkomulag örorkumats hafi tekið gildi 1. sept. s.l. Með þeim nýju lögum er fallið frá beinni tekjuviðmiðun við örorkumat, það byggist nú alfarið á læknisfræðilegum forsendum. Spurning er hvernig það muni reynast í framtíðinni.
Einnig sagði Jóhannes frá því að skattstjórar geri nú kröfu til skatts af slysabótum.
5) Skýrsla Hringsjár, starfsþjálfunar fatlaðra.
Guðrún Hannesdóttir forstöðumaður Hringsjár flutti hana.
Þjónustusamningur við félagsmálaráðuneytið var endurnýjaður í haust fyrir árin 1999 – 2000 og nær til 30 einstaklinga í senn.
En útslagið gerði þjónustusamningur sem gerður var þann 1. sept. s.l. við Tryggingastofnun ríkisins. Sá samningur snýst um þá sem eru á endurhæfingarlífeyri og nær til 4ra einstaklinga haustið 1999 og a.m.k. 8 einstaklinga í senn árið 2000.
30 nemendur luku haustönn 1998 auk 7 hópa 53ja einstaklinga er luku tölvu- og bókhaldsnámskeiði.
Nú eru þrír hópar í einu á önn og eru það 36 nemendur.
Guðrún gat um nefndarskipan vegna hugsanlegrar Hringsjár – deildar norðan heiða þ.e. á Akureyri. Í nefndinni eru auk Guðrúnar H., Helgi Seljan framkvæmdastjóri ÖBÍ og Helgi Jósefsson, skólastjóri Fullorðinsfræðslunnar á Akureyri en Guðrún er formaður hópsins.
Einnig gat hún um nýjar starfsreglur Hringsjár. Í stjórn Hringsjár eru nú þau Ólöf Ríkarðsdóttir, Ólafur Sigurjónsson og Margrét Margeirsdóttir.
6) Skýrsla Hússjóðs Öryrkjabandalagsins.
Hafliði Hjartarson varaform. stjórnar Hússjóðs flutti skýrsluna í fjarveru Helga Hjörvar.
Á liðnu starfsári hefur Hússjóður sinnt hefðbundnum verkefnum sínum er varða rekstur og útleigu 540 íbúða í hans eigu.
Hafliði leiðrétti upphæð varðandi tekjuafgang ársins 1998 en hann var sagður 30,7 milljónir en hið rétta er 71,6 milljónir. Rekstrarafkoman v. ársins er því vel viðunandi.
20. mars s.l. var fyrsta skóflustungan tekin að Sléttuvegi 9, Rvk. Þar mun rísa 4ra hæða hús með 30 íbúðum af mismunandi stærðum þar af 3 í raðhúsum, auk bifreiðageymslu. Verkið var boðið út og voru Á.H.Á. verktakar með lægsta tilboð upp á 314 milljónir.
Mikil aðsókn er í húsnæði Hússjóðs. Nú liggja fyrir u.þ.b. 350 umsóknir, lang-flestar frá einhleypingum. Aukning hefur orðið mikil frá s.l. ári eða um 100 umsóknir. Enda eru umsækjendur af öllu landinu og algengt að fólk af landsbyggðinni flytji suður ef eitthað kemur fyrir varðandi heilsufar og fólk fer á örorku, þá er oft ekki um að ræða annað en flytja þangað sem þjónusta er mest eða best.
Í stjórn Hússjóðs Öryrkjabandalagsins eru nú þeir: Helgi Hjörvar formaður, Hafliði Hjartarson varaformaður, Jóhannes Ágústsson, Emil Thóroddsen og Gunnar Bragi Sveinsson frá félagsmálaráðuneyti.
7) Skýrsla Vinnustaða ÖBÍ.
Þorsteinn Jóhannsson framkvæmdastjóri Vinnustaðanna flutti skýrsluna.
Þorsteinn sagði að að teknu tilliti til framlaga til starfseminnar frá ríkissjóði og ÖBÍ væri niðurstaða rekstrarreiknings 3,5 milljónir í halla. Þorsteinn ræddi einnig þjónustusamning við félagsmálaráðuneytið fyrir 1998 – 1999. Framlög til Vinnustaðanna jukust úr 6.4 í 9,9 milljónir á ári.
Fjárfest var fyrir 8 – 9 milljónir. Um 3 milljónir fengust upp í þær fjárfestingar úr Framkvæmdasjóði fatlaðra.
Á árunum 1998 – 1999 hafa verið starfandi að jafnaði samtals 40 starfsmenn, 30 – 36 fatlaðir í 15 – 18 stöðugildum.
Á árinu fengu Vinnustaðirnir kr. 9,9 milljónir frá ríkinu en greiddu á 11. milljón til samfélagsins.
Að lokum fjallaði Þorsteinn um ráðstefnu gærdagsins um atvinnumál og undirstrikaði að í alla staði hefði vel verið staðið að henni.
Fyrirspurnir og umræður um skýrslurnar.
Í almennum umræðum um skýrslurnar tóku ýmsir þátt, m.a. komu ýmsar fyrirspurnir sem greiðlega var svarað. Gísli Helgason spurði hversu raunhæfur biðlistinn væri og hvort sama fólkið væri á fleiri en einum biðlista. Kristín Jónsdóttir kvað biðlistann gefa mjög raunhæfa mynd af íbúðarþörf. Enda er náin samvinna höfð við aðra aðila sem bjóða uppá húsnæði fyrir öryrkja, s.s. samtök fatlaðra, svæðisskrifstofur og fleiri aðila.
Valey Jónasdóttir fagnaði væntanlegri tilkomu Hringsjár á Akureyri. Þá þakkaði hún fyrir góða atvinnumálaráðstefnu.
Hafdís Hannesdóttir lagði sérstaka áherslu á það að hjálpartækjamál verði áfram hjá ríkinu, hvað sem líður allri yfirfærslu. Helgi Seljan svaraði og sagði að svo myndi verða.
Arnór Pétursson tók til umræðu bifreiðakaupastyrkina. Hann benti á að lægri styrkurinn hefði hækkað um 6% en sá hærri um 30%. Þá vildi Arnór sjá ÖBÍ í samstarfi um þróunarhjálp. Varðandi þróunaraðstoð sagði Hafdís Hannesdóttir að hún hefði sótt norrænan samráðsfund varðandi þróunarhjálp.
8) Reikningar.
Eyjólfur Guðmundsson endurskoðandi flutti/lagði fram reikninga Öryrkjabandalags Íslands, Vinnustaða Öryrkjabandalagsins, Hússjóðs Öryrkjabandalagsins og Hringsjár – starfsþjálfunar fatlaðra fyrir árið 1998.
Öryrkjabandalag Íslands.
Tekjuafgangur 3.277 þús.
Eigið fé, neikvætt 918 þús.
Hússjóður Öryrkjabandalagsins.
Tekjuafgangur 71.565 þús.
Eigið fé 1.563.861 þús.
Vinnustaðir Öryrkjabandalagsins.
Skuldir umfram eignir (tap) 3.519 þús.
Eigið fé 5.335 þús.
Reikningar voru samþykktir samhljóða.
9) Yfirlit nefnda:
Atvinnumálanefnd:
Hafliði Hjartarson flutti skýrslu atvinnumálanefndar sem hélt fimm fundi á árinu. Hann fjallaði m.a. um rekstrargrundvöll vernduðu vinnustaðanna, launa- og kjaramál þeirra. Hann nefndi að það þyrfti að fara fram úttekt á þjóðhagslegu gildi vernduðu vinnustaðanna.
Nefndin fjallaði einnig um álit nefndar félagsmálaráðuneytisins um starfskjör á vernduðum vinnustöðum og var í höfuðatriðum sammála innihaldi álitsins en gerði þó ýmsar athugasemdir.
Félagsmálanefnd:
Guðríður Ólafsdóttir flutti yfirlit félagsmálanefndar. Nefndin fór m.a. yfir tillögur um bætta stöðu og þátttöku fatlaðra í tómstundum, menningu og ferðalögum.
Bandarískar siðareglur skólaliða voru þýddar að beiðni félags skólaliða.
Þá voru einnig ferlimál mikið til umræðu.
Kjaramálanefnd:
Garðar Sverrisson flutti yfirlit kjaramálanefndar. Hann greindi frá kynningarátaki fyrir síðustu alþingiskosningar. Hann sagði einnig að fjárlagafrumvarp fyrir næsta ár gæfi ekki tilefni til bjartsýni.
Í tengslum við kjaramálin var haft náið samstarf við marga aðila. Garðar gat þess að til viðbótar við frítekjumark sem hækkaði um 4% er gert ráð fyrir að bætur alm.tr. hækki einungis um 3% og skattleysismörkin ekki nema um 2,5 %.
Kaupmáttur skattleysismarka s.l. 10 ár hefur lækkað um 23%.
Menntamálanefnd:
Ólafur Sigurjónsson flutti yfirlit menntamálanefndar. Nefndin kynnti sér og yfirfór nýjar námsskrár fyrir leikskóla, grunnskóla og framhaldsskóla.
Ólafur benti á að menntun og starfsþjálfun skipti oft sköpum í lífi fólks.
Ólafur kvað tveggja ára brautir á framhaldsskólastigi ná allt of skammt og námsframboð væri fátæklegt.
Skapa þarf fólki skilyrði við hæfi.
Í menntamálanefnd eru þau: Ólafur H. Sigurjónsson, Guðrún Hannesdóttir, Emil Thóroddsen og Heidi Kristiansen.
4. Kosning framkvæmdastjórnar og skoðunarmanna.
Formaður uppstillinganefndar Þórir Þorvarðarson kynnti tillögur nefndarinnar um fólk í framkvæmdastjórn.
Formaður til tveggja ára var kjörinn Garðar Sverrisson. Gjaldkeri til tveggja ára var kjörinn Emil Thóroddsen.
Varaformaður til eins árs var kjörin Hafdís Gísladóttir.
Ritari til eins árs var kjörinn Gísli Helgason.
Fyrir er í stjórninni: Valgerður Ósk Auðunsdóttir meðstjórnandi. Varamenn voru kjörin þau Dagfríður Halldórsdóttir, Elísabet Á Möller og Arnór Pétursson.
Þau voru öll sjálfkjörin og með lófaklappi.
Skoðunarmenn voru sjálfkjörnir þeir Tómas Sturlaugsson og Vigfús Gunnarsson
Haukur Þórðarson fráfarandi formaður ÖBÍ kvaddi sér hljóðs. Hann þakkaði fyrir samstarf og samskipti við starfsmenn og stjórnarmenn Öryrkjabandalagsins, en störf hans spönnuðu tæplega 4 áratugi í þessum málaflokki.
Haukur kvað þau samskipti heið og björt í huga sér. Hann óskaði síðan nýrri framkvæmdastjórn góðs gengis í framtíðinni.
Hafliði Hjartarson fráfarandi gjaldkeri í framkvæmdastjórn ÖBÍ færði fram þakkir fyrir ánægjulegan tíma og færði viðtakendum farsældar óskir.
Matarhlé var gert kl. 12.15 – 13.15
Að loknu matarhléi kallaði fundarstjóri upp Vilhjálm B. Vilhjálmsson í tilefni þeirra tímamóta á liðnu sumri er Vilhjálmur hætti framkvæmdastjórastörfum hjá Íslenskri getspá.
Vilhjálmur ávarpaði fundinn og kvað það hafa verið gleði sína að hafa getað séð fjárhag bandalagsins borgið.
Síðan þakkaði hann ánægjulegt samstarf liðinna ára.
Ólöf Ríkarðsdóttir kynnti handbókina “Aðgengi fyrir alla„ Bókin er 388 bls. og skiptist í 8 kafla. Bókin lýsir hvernig umhverfi þarf að vera til þess að það komi öllum til góðs. Handbókin er fyrsta íslenska bókin um þetta mál.
Þá minntist Ólöf á ráðstefnu sem haldin var 18. okt. s.l. þar sem bókin var kynnt sérstaklega í tilefni úkomu hennar.
5. Skipt í starfshópa sem unnu í eina og hálfa klst.
6. Starfshópar skila áliti og ályktanir þeirra.
Hópar voru eftirfarandi:
Atvinnumál, félagsmál, kjaramál, menntamál og búsetumál.
a) Atvinnumál.
Þorsteinn Jóhannsson kynnti álit hópsins.
Í hópnum voru 9 þátttakendur.
Fagnað var góðri atvinnumálaráðstefnu, lögð áhersla á vönduð ákvæði um atvinnumál fatlaðra inn í lög um vinnumarkaðsaðgerðir. Allt of kröppum skerðingarákvæðum sem væru letjandi var einnig mótmælt.
Hópurinn leggur til að ÖBÍ leiti leiða til að koma kynningu og uppfræðslu inn í fræðslunámskeið fyrir trúnaðarmenn á almennum vinnumarkaði.
b) Félagsmál.
Sigurður Viggósson talaði fyrir hönd hópsins, í honum voru alls 11 þátttakendur.
Helstu þættir til umræðu voru þessir:
Afþreying, tómstundir, menning og listir. Einnig var fjallað um aðgengi, ferðamál, fræðslu- og menningarmál og áfallahjálp.
Mikil þörf er fyrir sumarbúðir fyrir fötluð ungmenni og fólk sem þarf sérstaka aðstoð. Tilraun ÖBÍ s.l. sumar varðandi útleigu sumarbústaða til öryrkja í samvinnu við BSRB tókst vel.
Þá var mælt með að möguleikar fatlaðra til að sækja menningu og listir verði auknir og eins möguleikar þeirra til sköpunar.
Einnig var sérstaklega fjallað um nauðsyn góðs aðgengis að öllum kirkjum landsins. Ferðalög voru rædd. Þá var lögð áhersla á mikilvægi upplýsinga um aðgengilega ferðamöguleika sem hentað geta hinum ýmsu hópum fatlaðra.
Varðandi fræðslu um málefni fatlaðra innan grunnskólanna var bent á mikinn ávinning í baráttunni gegn fordómum. Mikilvægt er að halda því starfi áfram.
Varðandi áfallahjálp er mikilvægt að koma henni á eða trúnaðarmannakerfi þar sem nýfatlaðir og/eða nýgreindir einstaklingar eru fræddir og fjölskyldur þeirra.
Eftirfarandi ályktun var borin upp:
Ályktun.
Hópurinn leggur til að ÖBÍ vinni að því við menntamálayfirvöld að upp verði tekið námsefni um málefni fatlaðra á öllum námsstigum kennaramenntunar.
Samþykkt samhljóða.
c) Kjaramál.
Garðar Sverrisson talaði fyrir hönd hópsins.
Í starfshópnum voru 16 þátttakendur.
Garðar ræddi um að fatlaðir þurfi að vinna gegn sínum eigin fordómum.
Samtökin ættu að reyna að virkja fleira fólk til þátttöku og vinna saman að hinum ýmsu baráttumálum fatlaðra. Nefndi hann að í grasrótinni hafi tekist að ná góðri samvinnu við sjálfstæðan átakshóp öryrkja sem samanstendur af einstaklingum úr hinum ýmsu aðildarfélögum innan ÖBÍ.
Garðar lagði fram eftirfarandi ályktun:
Ályktun.
Aðalfundur Öryrkjabandalags Íslands haldinn laugardaginn 6. nóv. 1999 skorar á Alþingi að aflétta því neyðarástandi sem ríkir í tryggingamálum öryrkja og búa svo um hnúta að örorka verði ekki framar ávísun á efnahagslega útskúfun. Þá ítrekar fundurinn fyrri áskorun sína til Alþingis um að það viðurkenni hina margvíslegu sérstöðu öryrkja með því að hækka örorkulífeyri sérstaklega og mest hjá þeim sem verða fyrir varanlegri örorku snemma á starfsævinni. Einnig skorar fundurinn á stjórnvöld að leiðrétta lífeyrisgreiðslur til samræmis við þróun launa á síðustu árum og tryggja að þær dragist aldrei aftur úr þróun launavísitölu.
Aðalfundur ÖBÍ vekur athygli á því að jaðarskattar eru hvergi hærri en hjá þeim öryrkjum sem reyna að hasla sér völl á vinnumarkaði. Það er ríkissjóði og samfélaginu öllu til fjárhagslegs skaða að sporna svo mjög gegn atvinnuþátttöku fatlaðra. Til að bæta hér úr ber brýna nauðsyn til að hækka verulega frítekjumörk vegna atvinnutekna og leiðrétta skattleysismörk til samræmis við þróun launavísitölu síðustu 10 ára. Þá er ekki síður brýnt að hverfa þegar í stað frá skattlagningu húsaleigubóta.
Samþykkt samhljóða.
d) Menntamál.
Benedikt E. Benediktsson talaði fyrir hönd hópsins.
Meðal þess sem þar kom fram var að auka þyrfti námsframboð í framhaldsskólum, þar þyrfti fjölbreytni að vera meiri og aukin áhersla á starfsfræðslu. Lögð var áhersla á það að unnt væri að fá hjálpartæki á hverjum tíma sem létt gætu undir við námið.
Tryggja þarf hvers konar aðgengi að menntun og menntastofnunum. Meiri hvatning til náms þyrfti að koma til gagnvart þeim sem fatlast af völdum sjúkdóma eð slysa.
Í lögum um grunnskóla og hinna ýmsu menntastofnana er sagt að skólar eigi lögum samkvæmt að veita hina og þessa þjónustu. En hins vegar hafa skólarnir ekki nægilegt fjármagn til að framfylgja þeim lögum sem þeim ber að framkvæma.
Í framhaldi af máli Benedikts var bent á nauðsyn þess að skólakerfið lagi sig að þeim einstaklingum sem þurfa heilsdagsþjónustu. Enn fremur var talað um að hjálpartæki kæmu seint og það væri líka dýrt að hafa þau ekki.
e) Búsetuhópur.
Hafliði Hjartarson talaði fyrir hönd hópsins.
Í starfshópnum voru 10 þátttakendur.
Hópurinn ræddi um að þörf væri nýrra úrræða, t.d. kanna vel sjálfseignarformið.
Rætt um hvort Hússjóður ætti að vera í íbúðaútleigu eingöngu eða taka þátt í þjónustunni líka. Það þarf að skoðast og líta þá hugsanlega til nýrra leiða.
Hvað ætti Hússjóður að vera stór, hvar eru þau mörk?
Rætt um að Hússjóður hafi fastmótaða stefnu í búsetumálum.
Mikið var rætt um skort á þjónustu við geðfatlaða og fleiri hópa fatlaðra.
Pétur Hauksson kynnti svohljóðandi ályktun hópsins:
Ályktun.
Brýnt er að fjölga búsetuúrræðum með mismiklu þjónustustigi. Ljóst er að ákveðnir hópar fólks eru í þörf fyrir sérhæfða og í sumum tilfellum mikla þjónustu á heimilum sínum t.d. vegna hreyfihömlunar, geðfötlunar eða þroskahömlunar. Fyrir marga er æskilegasta úrræðið þjónustukjarni með aðliggjandi íbúðum. Við yfirfærslu á málefnum fatlaðra til sveitarfélaga þarf að tryggja vel yfirfærslu fjármagns vegna þjónustu þeirra sem nú eiga heimili sín á stofnunum.
Samþykkt samhljóða.
7. Önnur mál.
Arnór Pétursson vildi að uppstillingarnefnd skilaði tímanlegar af sér og endurskoðun laga bandalagsins væri tímabær. Hann flutti svohljóðandi tillögu:
Tillaga.
Aðalfundur ÖBÍ haldinn í Reykjavík 6. nóvember 1999 beinir því til framkvæmdastjórnar að hún skipi nefnd til að fara yfir og endurskoða lög bandalagsins.
Samþykkt með þorra greiddra atkvæða.
Arnór ræddi einnig bílastæðamál fatlaðra og bar fram svohljóðandi tillögu:
Tillaga.
Aðalfundur ÖBÍ haldinn í Reykjavík 6. nóv. 1999 skorar á ökumenn að virða sérstök bifreiðastæði fatlaðra. Jafnframt er skorað á sveitarfélögin í landinu að fjölga slíkum bifreiðastæðum svo fatlaðir eigi auðveldara með að sinna erindum sínum.
Samþykkt samhljóða.
Haukur Þórðarson velti upp þeirri hugmynd að aðalfundur ÖBÍ kysi uppstillinga- eða kjörnefnd.
Hafdís Hannesdóttir fór lofsamlegum orðum um Hauk og störf hans í þágu bandalagsins í tugi ára. Í því sambandi lofaði hún sérstaklega störf Hauks sem góðs fræðara.
Halldór Sævar Guðbergsson form. Blindrafélagsins minnti á mikilvægi tæknibúnaðar og mikla og öra þróun hjálpartækja blindra og sjónskertra. Þá fagnaði hann ráðstefnu um atvinnumál fatlaðra sem haldin var daginn áður.
Eiríkur Þorláksson kom með þá tillögu að aðalfundur ÖBÍ yrði haldinn snemma árs, svo að t.d. tölur reikninganna væru nýjar. Þetta ætti endurskoðunarnefnd að taka til athugunar.
Fundarstjórar Þórir Þorvarðarson og Sigríður Kristinsdóttir þökkuðu fyrir sig og var þeim þakkað með lófataki.
Að því loknu tók Garðar Sverrisson nýkjörinn formaður til máls og þakkaði veittan stuðning.
Garðar lagði áherslu á að ná til hins almenna bandalagsmanns. Sagði að við þyrftum að breyta viðhorfum almennings til okkar og einnig að við sjálf þyrftum að breyta viðhorfum okkar sjálfra.
Því næst færði Garðar Hauki Þórðarsyni og Hafliða Hjartarsyni sérstakar þakkir fyrir störf þeirra. Bandalagið kvaddi þá með fögrum blómvöndum sem Guðríður Ólafsdóttir færði þeim í lokin.
Garðar Sverrisson formaður Öryrkjabandalagsins sleit fundi kl. 16.40
Fundarritarar
Kristín Jónsdóttir
Helgi Hróðmarsson
