Fundargerð aðalstjórnar ÖBÍ 18. maí 2006
Fundur aðalstjórnar ÖBÍ 18. maí 2006
Fundargerð
Fimmtudaginn 18. maí 2006, kom aðalstjórn Öryrkjabandalags Íslands saman til fundar að Sléttuvegi 7. Fundur var boðaður kl. 16:45.
Fundi stýrði formaður Öryrkjabandalags Íslands, Sigursteinn Másson.
Eftirtaldir sátu fundinn:
Unnur Þorsteinsdóttir Félagi nýrnasjúkra
Sigurlín Margrét Sigurðardóttir Félagi heyrnarlausra
Ingi Hans Ágústsson Alnæmissamtökunum á Íslandi
Sigríður Jóhannsdóttir Samtökum sykursjúkra
Bryndís Snæbjörnsdóttir Foreldra- og styrktarfélagi heyrnarlausra
Guðrún Pétursdóttir Umsjónarfélagi einhverfra
Guðjón Ingi Stefánsson Heyrnarhjálp
Tryggvi Þór Agnarsson Tourette samtökunum
Guðmundur S Johnsen Félagi lesblindra
Valgerður Auðunsdóttir SPOEX-samt. psoriasis og exemsjúklinga
Ægir Lúðvíksson MND-félagi Íslands
Kristján Freyr Helgason Stómasamtökum Íslands
Hafrún Kristjánsdóttir Geðverndarfélagi Íslands
Guðmundur Magnússon SEM-samtökunum
Björn Tryggvason Málbjörgu-félagi um stam
Birgir Þ Kjartansson SÍBS
Vilmundur Gíslason Styrktarfélagi lamaðra og fatlaðra
Halldór S Guðbergsson Blindrafélaginu
Þorbera Fjölnisdóttir Kvennahreyfingu ÖBÍ
Kolbrún Dögg Kristjánsdóttir Sjálfsbjörg lsf.
Garðar Sverrisson MS-félagi Íslands
María Th. Jónsdóttir FAAS- félagi aðstandenda Alzheimersj.
Steinunn Þóra Árnadóttir gjaldkeri í framkvæmdastjórn ÖBÍ
Friðrik Alexandersson Styrktarfélagi vangefinna
Emil Thóroddsen Gigtarfélagi Íslands
Sigursteinn Másson Geðhjálp – formaður ÖBÍ
Hafdís Gísladóttir framkvæmdastjóri ÖBÍ
Guðríður Ólafsdóttir félagsmálafulltrúi ÖBÍ
Bára Snæfeld upplýsingafulltrúi ÖBÍ
Formaður setti fund kl 16:57 og bauð fundarmenn velkomna. Afsakaði hann að fundurinn skuli hafa verið boðaður að Sléttuvegi 9 og að hann skuli vera haldinn í þessum sal sem er of lítill fyrir þetta stóran hóp.
Tók hann síðan fyrir mál varðandi skipan fulltrúa frá aðildarfélögum í aðalstjórn ÖBÍ og breytingar á skipan fulltrúa milli aðalfunda ÖBÍ. Tilefni er breyting sem orðin er á tilnefningu fulltrúa frá nokkrum félögum t.d. frá Blindrafélaginu en bæði aðalmaður og varamaður þess félags hafa sagt af sér sem fulltrúar síns félags í aðalstjórn ÖBÍ.
Fór formaður nokkrum orðum um stöðu þeirra fulltrúa sem skipaðir eru af einstökum félögum til setu í aðalstjórn ÖBÍ á milli aðalfunda ÖBÍ. Vildi hann ræða hvort slíkt væri heimilt og vitnaði í lög ÖBÍ og lögfræðiálit máli sínu til stuðnings.
Garðar Sverrisson mótmælti því að efast væri um heimild einstakra félaga til að breyta tilnefningum fulltrúa í aðalstjórn ÖBÍ og skipta út fulltrúum ef þeim sýndist svo milli aðalfund ÖBÍ.
Formaður bað því næst lögfræðing félagsins Jóhannes Albert að skýra það lögfræðiálit sem hann vann um þetta efni. Var Jóhannesi þakkað hans yfirlit og urðu síðan nokkrar umræður og tóku allnokkrir fundarmen til máls. Fram kom m.a. að sum félög kjósa á aðalfundum sínum fulltrúa til setu í aðalstjórn ÖBÍ en í öðrum félögum skipa stjórnir félaganna þessa fulltrúa.
Niðurstaða þessarar umræðu varð sú að aðildarfélög geta skipt um fulltrúa í aðalstjórn milli aðalfunda ÖBÍ. Fram kom sú eðlilega krafa að aðildarfélögin tilkynni allar slíkar breytingar til skrifstofu ÖBÍ strax og þær taka gildi svo vitað sé hver er fulltrú hvers félags á hverjum tíma. Vísað til laganefndar að skýra þessa greinar í lögunum nánar með lagabreytingum sem afgreiddar verði á aðalfundi í haust. Samþykkt samhljóða
Að því búnu var gengið til dagskrár.
1. Skýrsla formanns
(sjá fylgiskjal 1)
Nokkrir fundarmanna tóku til máls um skýrslu formanns. Var formanni þökkuð skýrslan og skýrsla hópanna. Meðal þess sem fram kom var að kynna hefði átt niðurstöðu hópavinnunnar fyrir aðalstjórn áður en þeirri skýrslu var dreift. Jafnframt komu fram spurningar um hugmyndir hópanna varðandi yfirfærslu málaflokks fatlaðra til sveitarfélaganna og spurt hvort þar væri um breytingu á áherslum ÖBÍ að ræða. Þakkað var fyrir námskeið sem haldið hefur verið fyrir formenn og framkvæmdastjóra aðildarfélaganna.
Formaður svaraði spurningum og skýrði þau mál sem fram komu í máli fyrirspyrjenda.
2. Hópavinna Öryrkjabandalags Íslands, Landssambands eldri borgara og Landssamtakanna Þroskahjálp með stjórnmálaflokkunum.
Eins og fram kom í skýrslu formanns liggur fyrir vilji allra stjórnmálaflokkanna að vera með í þróun og útfærslu þeirra hugmynda sem fram koma undir yfirskriftinni “Eitt samfélag fyrir alla- hugmynd að betra samfélagi”. Flokkarnir eru þegar byrjaðir að tilnefna fólk í þetta starf en óskað hefur verið eftir fólki frá þeim sem hefur umboð. Óskaði formaður eftir umboði fundarins til að ÖBÍ leiði þetta starf áfram og að formaður verði þar í aðalhlutverki.
Lýstu fundarmenn vilja sínum til þess að svo verði. Auglýsti hann einnig eftir hugmyndum fundarmanna varðandi framhaldið. Emil mælti með að inn í þessa vinnu komi fleiri -- tveir fulltrúar lágmark frá ÖBÍ og lýsti Guðmundur Magnússon sig samþykkan því. Ákveðið var að taka ákvörðun um einstaklinga á fyrsta fundi aðalstjórnar að hausti.
3. Staðfesting á ráðningarsamningi framkvæmdastjóra.
Formaður vitnaði til síðasta fundar og eftirfarandi tillögu sem samþykkt var og hljóðar svo:
“Staðfesting á ráðningarsamningi framkvæmdastjóra Hafdísar Gísladóttur, fari fram á aðalstjórnarfundi 18. maí og þeir sem vilja kynna sér samninginn mæti fyrir þann tíma á skrifstofu ÖBÍ”.
Formaður óskaði eftir að fundarmenn greiddu atkvæði um staðfestingu umrædds ráðningarsamnings án frekari umræðu. Þessu mótmælti Guðmundur Johnsen og krafðist frekari umræðu um málið. Fram kom að aðeins tveir fulltrúar aðalstjórnar hafa komið á skrifstofu ÖBÍ til að skoða samninginn en ekki viljað skrifa undir trúnaðaryfirlýsingu, sem var krafist til að samningurinn væri sýndur. Formaður las umrædda trúnaðaryfirlýsingu til upplýsingar fyrir fundarmenn.
Fram kom í máli flestra fundarmanna að á þessum fundi bæri að afgreiða þetta mál án frekari umræðu, hún hafi farið fram á síðasta fundi. Eftir talsverðar umræður var málið tekið til afgreiðslu og ráðningar samningurinn staðfestur með 16 atkvæðum gegn 2.
4. Afgreiðsla styrkumsókna
Dreift var blaði með tillögu framkvæmdastjórnar um styrkveitingar til aðildarfélaganna. Emil skýrið fyrir fundarmönnum hvernig framkvæmdastjórn stóð að þessari tillögu og las upp tillöguna en 44 milljónir eru til skiptanna.
Nokkur umræða var um hvernig standa skuli að umsóknum og hvernig þær skuli metnar. Var því beint til framkvæmdastjórnar að reyna að gera tillögur að leiðbeiningum í þessu sambandi. Tillaga framkvæmdastjórnar var samþykkt samhljóða. (sjá fylgiskjal 2)
5. Önnur mál
a) Starfslok fyrrverandi framkvæmdastjóra.
Ástráður Haraldsson lögfræðingur, sem hefur haft með þetta mál að gera fyrir hönd ÖBÍ, gerði grein fyrir sinni aðkomu að starfslokasamningi Arnþórs. Gerði hann grein fyrir því að lögfræðingi Arnþórs hafi verið send drög að samningi sem miðaði að 6 mánaða samningi, en ráðningasamningur Arnþórs gerði aðeins ráð fyrir 3 mánaða uppsagnartíma. Sagðist Ástráður hafa gert lögmanni Arnþórs munnlega grein fyrir því að möguleiki gæti verið á aukningu í samninginn.
Í svari lögmanns Arnþórs var 6 mánaða tímabili hafnað en þess í stað krafist 12 mánaða. Ástráður kvaðst hafa óskað eftir fundi svo hægt væri að ræða málin og finna millileið en því hafi verið hafnað og 12 mánuðir ítrekaðir. Þar sem ekki tókst að hreyfa málinu var Arnþóri sent bréf í lok apríl. þar sem tilkynnt var ákvörðun um að hann fengi laun út júlí ásamt tölvubúnaði þeim sem ÖBí keypti sérstaklega fyrir hann meðan hann var í starfi. Ástráður upplýsti að erfitt hafi verið að vinna í málinu þar sem honum hafi ekki alltaf verið ljóst hvort lögmaður Arnþórs hafi haft skýrt umboð.
Nokkrar umræður voru um málið og kom fram vilji fundarmanna til að nálgast óskir Arnþórs með einhverjum hætti. Var því beint til formanns og framkvæmdastjórnar að gera tilraun til að ljúka þessu máli með því að starfslokauppgjör við Arnþór verði ígildi allt að eins árs launa sem verði í formi peningagreiðslna og sérhæfðs búnaðar sem áður er getið.
Formaður þakkaði fundarmönnum fyrir fundinn og sleit því næst fundi kl. 19:13
Fundarritari Friðrik Alexandersson.
Fylgiskjal nr. 1
Skýrsla formanns á aðalstjórnarfundi ÖBÍ 18. maí 2006.
Kæru félagar,
Fyrir liggur vilji allra stjórnmálaflokka á Íslandi að starfa með okkur að þróun og útfærslu tillagna þeirra sem kynntar hafa verið undir yfirskriftinni Eitt samfélag fyrir alla-hugmynd að betra samfélagi. Frá því að við hittumst síðast á vettvangi aðalstjórnar hefur það gerst að hópar skipaðir fulltrúum aðildarfélaga ÖBÍ, Þroskahjálpar og Landsambandi eldri borgara skiluðu niðurstöðum um fimm megin málefni. Í fyrsta lagi Breyttri framfærsluskipan almannatrygginga og skattkerfi með áherslu á einföldun kerfisins. Í öðru lagi; leiðir til aukinnar atvinnuþátttöku öryrkja og eldri borgara en þó sérstaklega öryrkja. Í þriðja lagi; Hugmyndir um aukin menntunarúrræði, endurhæfingu og hæfingu. Í fjórða lagi: Búsetumál, fjölskyldulíf og stoðþjónusta til sjálfstæðrar tilveru. Og í fimmta lagi var skilað inn hugmyndum um aðgengi og hönnun góðrar heilbrigðisþjónustu. 56 manns störfuðu í hópunum auk sex sérfræðinga. Það er óhætt að segja að frábærlega vel hafi tekist til. Í ljós kom mikill samhljómur á milli hinna ólíku hópa sem komu þarna saman og úr ólíkum áttum um öll meginatriði. Um leið og ég þakka af heilum hug öllum þeim félagsmönnum ÖBÍ sem komu af krafti að þessu starfi vil ég þakka Landsambandi eldri borgara og Landssamtökunum Þroskahjálp fyrir einkar jákvæða samvinnu. Sú góða samvinna sem náðst hefur á milli þessara aðila er dýrmæt. ÖBÍ hefur leitt þetta starf og mun gera það áfram en það er engum blöðum um það að fletta að þessi samvinna og samstaða hefur gefið starfinu enn meira vægi en ella væri og sömuleiðis skapað því meiri trúverðugleika. Eins og áður hefur komið fram er hér um grunnhugmyndir að ræða til áframhaldandi þróunar og útfærslu og því ekki plagg til formlegrar afgreiðslu aðalstjórnar ÖBÍ. Það er hinsvegar mikilvægt að samhljómur sé með stofnunum ÖBÍ og þess grasrótarstarfs sem hér hefur átt sér stað í náinni samvinnu við aðildarfélögin. Til stóð að halda sérstakan kynningarfund fyrir aðalstjórn en honum var aflýst vegna þess að ekki fékkst túlkur. Aðalstjórnarmönnum var hinsvegar sent plaggið um leið og hópstjórar og sérfræðingar höfðu gengið endanlega frá því. Þetta er hvorki meira né minna en sögulegt tækifæri fyrir heildarhreyfingu fatlaðra og 12.700 öryrkja í þessu landi. Auðvitað munum við grípa þetta tækifæri og starfa á uppbyggilegan hátt að virkara velferðarkerfi. Annað eins tækifæri gefst ekki á næstu árum. Við settum okkur það markmið í ársbyrjun að koma okkur niður á grunnhugmyndir og ná fram þverpólitískri samstöðu um þátttöku við þróun þeirra og útfærslu fram að næstu alþingiskosningum. Markmiðinu er náð. Við gerðum gott betur vegna þess að út úr hópastarfinu komu hugmyndir sem þegar eru farnar að hreyfa við frambjóðendum stjórnmálaflokka til sveitarstjórna. Málefni öryrkja og aldraðra eru ofarlega á baugi í þessum kosningum, sérstaklega þó aldraðra. Kallað er eftir því að starf okkar verði víkkað út. Aðilar vinnumarkaðarins hafa áhuga á þátttöku og sömuleiðis er brýnt að Landssamband lífeyrissjóða komi að tilteknum þáttum. Er ég þá sérstaklega að horfa til endurhæfingarmálanna. Stjórnmálaflokkarnir eru byrjaðir að tilnefna fulltrúa en formlega verður kallað eftir tilnefningum eins fulltrúa frá hverjum flokki í næstu viku. Með kynningarátaki ÖBÍ í aðdraganda að kynningu hópastarfsins í apríl var leitað samstarfs við ungliðahreyfingar aðildarfélaganna. Mjög vel tókst til og er nú kominn fram vilji ungliðahreyfinganna um að skapa sameiginlegan samráðsvettvang sín á milli í samvinnu við ÖBÍ. Við tökum þeim fagnandi að sjálfsögðu. Mikilvægt er að finna leiðir til að virkja hinar ríku hugmyndir og hæfileika sem búa meðal ungs fatlaðs fólks. Þau gera sér vel grein fyrir því að við eigum enn mjög langt í land með að breyta viðhorfum og án viðhorfsbreytinga verður alltaf takmörkuðum árangri náð. Mér finnst koma vel til greina að ungliðahreyfingarnar taki sameiginlega og virkan þátt í kynningarstarfi ÖBÍ með reglubundnum og skipulögðum hætti auk þess sem þau starfi hvert fyrir sitt félag héðan í frá sem hingað til. Í þeim býr mikill mannauður og jákvæðni sem sum okkar hinna mættum stundum læra svolítið meira af.
Styrkumsóknir aðildarfélaga til ÖBÍ námu að þessu sinni 67.444.000. kr. En til úthlutunar voru 44.000.000. kr. Það er sex milljóna króna hækkun frá því í fyrra þegar heildarstyrkir til aðildarfélaga námu 38.000.000. króna.
Það er vandasamt verk framkvæmdastjórnar að veita styrki og frumraun mín í þeim efnum. Það sem ég hafði til hliðsjónar var í fyrsta lagi gæði umsókna. Þá að öll félög fengju hærri framlög en á síðasta ári. Í þriðja lagi að dregið yrði saman á milli þeirra félaga sem mest fá og þeirra sem minnst er úthlutað og í þriðja lagi að tillit yrði tekið til efnahagsreiknings eða stærðar félaganna og fjölda fólks á bak við þau. Án þess að framkvæmdastjórnarmenn hefðu neitt borið sig saman fyrir fram virtist sem þeir hefðu haft svipuð viðmið. Að þessu sinni það er eitt af þeim félögum sem allra minnst hlaut við síðustu styrkúthlutun sem hlýtur mestu hækkunina, bæði í krónum talið og hlutfallslega. Umsókn þess félags var vönduð, metnaðarfull og fullnægjandi fylgigögn. Það verður að segjast eins og er að í mörgum tilvikum er því ekki til að heilsa. Það er mjög brýnt að fram fari umræða um það á vettvangi ÖBÍ og innan félaganna hvernig hægt sé að styrkja umsóknirnar. Af hálfu núverandi framkvæmdastjórnar er mikill áhugi fyrir því að auka kröfur sem gerðar eru til félaganna hvað þetta varðar. Sömuleiðis er oft ábótavant upplýsingum um starfsemi félaganna og endurskoðaðra reikninga. Að hluta til er það vegna þess að aðalfundir hafa ekki enn verið haldnir en á þessu er brýnt að ráða bót fyrir næsta ár. Það er full ástæða fyrir ÖBÍ að styðja við bakið á litlum og veikburða félögum en árlegir styrkir mega ekki verða að sjálfkrafa áskrift. Það skal líka tekið fram að slakar umsóknir einskorðast ekki við lítil félög og áréttað að sumar umsóknir litlu félaganna eru til fyrirmyndar. Mikilvægt er að heildarsamtökin hafi góðar upplýsingar um það hvernig fénu er varið, að verkefnin séu vel skilgreind sem og meðfylgjandi verkefnisáætlun. Ef við viljum ekki að styrkjum ÖBÍ sé varið til hefðbundins reksturs þá þurfa þessar upplýsingar að liggja fyrir og ég visa því til ykkar að taka þessa umræðu upp innan ykkar félaga. Það gæti síðan fallið innan verksviðs framkvæmdahóps ÖBÍ um stefnumótun að koma með tillögur eða leiðbeiningar til ákvörðunar framkvæmdastjórnar og svo aðalstjórnar í þessu sambandi.
Á blaðsíðu 8 í skýrslu starfshópanna segir í fimmtu greinarskilum. Skipan starfshæfingarmála er sundurlaus og aðstaða til að veita þjónustuna allt of takmörkuð.
Formaður ÖBÍ hefur að undanförnu kynnt sér nokkuð starfsendurhæfingarmál og tekur undir þetta. Sum verkefnin eins og Janus í Vörðuskóla, eitt elsta starfsendurhæfingarverkefni landsins býr við ótrúlega þröngan kost.
Í Þingeyjarsýslum er í gangi starfsendurhæfingarverkefni sem gengur undir nafninu BYR sem náð hefur undraverðum árangri á fimm árum. 58% árangur segja þau, Janus gefur hærri tölur. Mörg önnur verkefni eru í gangi sem vita lítt eða ekki hvort af öðru, það vantar upplýsingar, það vantar erlenda sýn og samþættingu og það vantar skulbindandi þátttöku fjármagnsaðila auk hins opinbera. Framkvæmdastjórn ÖBÍ hefur samþykkt að stofna til ráðstefnu um starfsendurhæfingu þar sem allir þessir aðilar verði kallaðir saman og stilltir saman strengir. Leitað hefur verið eftir þátttöku Vinnumálastofnunar í ráðstefnunni og hefur því erindi verið vel tekið.
Þann tíunda maí úrskurðaði Héraðsdómur Reykjavíkur um frávísunarkröfu ríkislögmanns í máli Öryrkjabandalags Íslands gegn íslenska ríkinu. Svo fór að dómurinn vísaði aðalkröfu ÖBÍ frá sem efnislega gerði ráð fyrir því að Heilbrigðisráðherra væri skylt að sjá til þess að frumvarp til laga kæmi fram á Alþingi um fullar greiðslur til handa öryrkjum í samræmi við skilning ÖBÍ um efni samnings þess sem fyrrverandi formaður ÖBÍ handsalaði við fyrrverandi heilbrigðisráðherra í mars 2003. Dómurinn felst hinsvegar á varakröfu ÖBÍ en hún snýst um viðurkenningu á efni samkomulagsins og að greiðsluskylda samkvæmt því sé tæk til úrlausnar og hafnaði því kröfu ríkisins um frávísun málsins í heild. Þegar þessi niðurstaða lá fyrir voru tveir kostir í stöðunni. Kæra niðurstöðu héraðsdóms til hæstaréttar og taka áhættuna á því að málinu í heild yrði vísað frá þar eða að taka niðurstöðunni og fá efnisdóm. Það voru eindregin tilmæli lögmanns ÖBÍ að velja seinni kostinn og lagði formaður í fjölmiðlum áherslu á að um væri að ræða áfangasigur ÖBÍ en ekki tap eins og fyrstu fréttir á vefmiðlum settu málið upp.
Málefni heimilislauss fólks hafa nokkuð komið inn á borð formanns að undanförnu. Þar er um að ræða þá öryrkja sem ekki eiga sér nein hagsmunasamtök eða talsmenn. Það er mjög brýnt fyrir Öryrkjabandalagið að koma að þessum málum og hjálpa til við úrlausnir. Kominn er fram maður, sem sjálfur var heimilislaus vímuefnaneytandi í fjölmörg ár, í ræsinu hreinlega, sem skrifað hefur ágæta bók um efnið og vill beita sér fyrir þennan hóp. Það skiptir miklu máli að einn úr þeirra hópi komi fram, einstaklingur sem talar tungumál þeirra, skilur aðstæður þeirra af eigin raun. Fyrsti samráðsfundur með þátttöku forstöðumanns Gistiskýlisins við Þingholtsstræti og Konukots fór fram í dag.
Ágæta aðalstjórnarfólk,
Fleira mætti týna til úr starfinu frá því að fundað var síðast en margt af því þekkið þið þar sem lögð hefur verið rík áhersla á aukna upplýsingagjöf til félaganna. Á dögunum hélt Hafdís Gísladóttir framkvæmdastjóri námskeið undir yfirskriftinni; “Að koma málum í réttan farveg”. Námskeiðið var vel sótt en 17 manns komu frá aðildarfélögum ÖBÍ. Þar var farið yfir mikilvæg skref innan stjórnsýslunnar í þeim tilgangi að kalla fram hagfelldar niðurstöður í málum þar sem hallar á fólk. Hvaða kæruleiðir á að fara, hvaða fresti á að gefa og hvernig “búum við til mál” innan gæsalappa. Mörg ykkar sem hér eruð voruð á námskeiðinu. Áformað er að halda annað námskeið í lok sumars og sömuleiðis framhaldsnámskeið sem hugsað er sem praktísk þjálfun fyrir forsvarsmenn og starfsfólk aðildarfélaganna í að koma málum með formlegum hætti í höfn án þess að þurfa að leita ávallt lögfræðiaðstoðar.
Ég vil að lokum óska okkur öllum til hamingju með þann mikla árangur sem við höfum náð nú í vor með því að kalla stjórnmálaflokkanna opinberlega til þátttöku undir formerkjum róttækra breytinga sem þeir geta ekki lengur skotið sér undan að framkvæma með okkur.
Þakka ykkur fyrir.
Fylgiskjal nr. 2
Styrkir til aðildarfélaga ÖBÍ árið 2006
Tillögur framkvæmdastjórnar til samþykktar á fundi aðalstjórnar ÖBÍ
18. maí 2006.
(ATH! upphæðir eru í þúsundum króna).
Aðildarfélag ÖBÍ Upphæð í þús. króna
ADHD samtökin 1.700
Alnæmissamtökin á Íslandi 1.600
Blindrafélagið-samtök blindra og sjónskertra 1.700
Daufblindrafélag Íslands 1.150
FAAS-félag aðstandenda Alzheimersjúklinga 1.200
Félag heyrnarlausra 1.850
Félag lesblindra á Íslandi 950
Félag nýrnasjúkra 900
Foreldra- og styrktarfélag heyrnardaufra 950
Geðhjálp 2.700
Geðverndarfélag Íslands 850
Gigtarfélag Íslands 2.700
Heyrnarhjálp 1.200
LAUF-landssamtök áhugafólks um flogaveiki 1.300
Málbjörg-félag um stam 850
MND-félag Íslands 1.250
MS-félag Íslands 1.800
Parkinsonsamtökin á Íslandi 1.600
Samtök sykursjúkra 1.600
SEM – samtök endurhæfðra mænuskaddaðra 900
SÍBS-samband íslenskra berkla- og brjóstholssj. 2.650
Sjálfsbjörg, landssamband fatlaðra 2.700
SPOEX-samtök psoriasis og exemsjúklinga 2.000
Stómasamtök Íslands 900
Styrktarfélag lamaðra og fatlaðra 2.000
Styrktarfélag vangefinna 2.350
Tourette samtökin á Íslandi 1.250
Umsjónarfélag einhverfra 1.400
Samtals 44.000
Tvö félög, Bindravinafélag Íslands og MG-félag Íslands sóttu ekki um styrk í ár.
