Hvatningarverðlaun ÖBÍ
Á alþjóðadegi fatlaðra þann 3. desember 2007 voru Hvatningarverðlaun Öryrkjabandalags Íslands veitt í fyrsta sinn til þeirra sem stuðlað hafa að einu samfélagi fyrir alla. Veitt voru þrenn verðlaun til fyrirtækis, stofnunar og einstaklings, sem þykja hafa skarað fram úr og endurspeglað nútímalegar áherslur um jafnrétti, sjálfstætt líf og þátttöku fatlaðra í samfélaginu. Verðlaunaflokkum var breytt 2010, á þann hátt að nú er þrenn verðlaun í eftirtöldum flokkum einstaklings, fyrirtækis/stofnunar og umfjöllunar/kynningar. Verðlaunafhendingin er árlegur viðburður á alþjóðadegi fatlaðra 3. desember.
- Verðlaunahafar 2007-2012.
- Tilnefninga er leitað meðal aðildarfélaga ÖBÍ, annarra aðila sem vinna að málefnum fatlaðra sem og hjá almenningi.
- Hönnuður verðlaunanna er Þórunn Árnadóttir.
- Verndari verðlaunanna er forseti Íslands Hr. Ólafur Ragnar Grímsson.
