Eyðublað

Eyðublað

Tilnefningar óskast til Hvatningarverðlaun ÖBÍ 2009
Þann 3. desember næst komandi, á alþjóðadegi fatlaðra, veitir Öryrkjabandalag Íslands, Hvatningarverðlaunum ÖBÍ, þriðja sinni en þau eru árlegur viðburður á alþjóðadegi fatlaðra.

Veitt verða þrenn verðlaun, ein í hverjum flokki þ.e. til fyrirtækis, stofnunar og einstaklings, sem þykja hafa skarað fram úr og endurspeglað nútímalegar áherslur um jafnrétti, sjálfstætt líf og þátttöku fatlaðra í samfélaginu.

ÖBÍ leitar nú til allra sem þekkja til á þessum vettvangi og hvetur þá til að tilnefna verðugan fulltrúa sem hefur með jákvæðum hætti stuðlað að einu samfélagi fyrir alla. Tilnefna má sömu aðila og tilnefndir voru í fyrra ef vitað er að þeir falla undir þau markmið sem sett voru með þessum verðlaunum.

Eyðublað til útfyllingar

Tilnefningar óskast sendar í rafrænu formi til Báru Snæfeld, á tölvupóstfangið bara@obi.is  fyrir 1. október nk. (einnig má senda tilnefningar í hefðbundnum pósti en æskilegra að þær berist á rafrænu formi).

Síðastliðin tvö ár hafa eftirtaldir hlotið Hvatningarverðlaun ÖBÍ:

Árið 2008

  • í flokknum einstaklingur, Guðjón Sigurðsson, fyrir sýnileika, dugnað og árangur í málefnum fatlaðra.
  • í flokknum fyrirtæki,  Tónstofa Valgerðar, fyrir frumkvöðlastarf í þá veru að nemendur með sérþarfir njóti forgangs til tónlistarnáms.
  • í flokknum stofnun, Akureyrarbær – búsetudeild, fyrir frumkvöðlastarf í útfærslu á “Independent living”, notendastýrðri þjónustu fyrir fatlaða.

Árið 2007

  • í flokknum einstaklingur, Freyja Haraldsdóttir fyrir áhrif sín til að breyta viðhorfum fólks til fatlaðra og fyrir að vera frumkvöðull í að koma á fót notendastýrðri þjónustu.
  • í flokknum fyrirtæki, Móðir náttúra fyrir mikilvægt frumkvöðlastarf til aukinnar atvinnuþátttöku fatlaðra.
  • í flokknum stofnun, Starfsendurhæfing Norðurlands fyrir uppbyggingu starfsendurhæfingar sem byggir á samstarfi ólíkra starfsstétta og öflugu samfélagslegu tengslaneti.

Þema Sameinuðu þjóðanna þetta árið á alþjóðadegi fatlaðra er, Fullan og jafnan rétt fatlaðra til þátttöku í samfélaginu.

Undirbúningsnefnd Hvatningarverðlauna ÖBÍ 2009

Til baka, Senda grein, Prenta greinina

 





þetta vefsvæði byggir á eplica. eplica vefkerfivefkerfi - nánari upplýsingar á heimasíðu eplica.