Saga
Aðdragandi að Hvatningarverðlaunum ÖBÍ, fyrst úthlutað 3. desember 2007, stutt samantekt.
Á fundi á vegum EDF (European disability forum) veturinn 2007, kom meðal annars fram að Írar hefðu til fjölda ára veitt hvatningarverðlaun til aðila sem hefðu sýnt frumkvæði í að bæta stöðu fatlaðra í samfélaginu. Formaður ÖBÍ sat umræddan fund og færði þessa hugmynd heim til síns fólks innan ÖBÍ, með í huga að koma einhverju sambærilegu á hér. Leist mönnum vel á hugmyndina. Stefnt skyldi á afhendingu verðlauna, árlega, á alþjóðadegi fatlaðra þann 3. desember.
Í byrjun hausts 2007 tók undirbúningsnefnd Hvatningarverðlauna ÖBÍ til starfa. Ákveðið var að vera með þrískipt verðlaun þ.e. fyrir einstakling, fyrirtæki og stofnun og að tilnefningar í hverjum flokki yrðu sex. Voru menn sammála um að mestu skipti að verðlaunin yrðu öðrum/fleirum hvatning til að gera enn betur til innleiðingar á samfélagi fyrir alla, ásamt því að efla frumkvæði til nýrra verkefna og hugmyndavinnu í málaflokknum. Markmið verðlaunanna yrði meðal annars að skapa jákvæða ímynd fyrir fatlaða með ÖBÍ í fararbroddi, auk þess að skapa tækifæri til að sýna mikilvægi þess að setja fyrirmyndir fyrir samfélag fyrir alla. Kallað var eftir tilnefningum frá aðildarfélögum ÖBÍ, 32 að tölu.
Ákveðið var að þekktir einstaklingar sem tengsl hafa við fötlun á einhvern hátt yrðu valdir í dómnefnd og hana skipuðu 5 manns, af báðum kynjum, auk þess að uppfylla skilyrði um aldursdreifingu, aðkomu háskólaumhverfis, fjölmiðla, fyrirtækja, að vera fatlaður og almennur borgari. Í dómnefnd voru skipuð Ólöf Ríkarðsdóttir fyrrverandi formaður ÖBÍ, Kristín Rós Hákonardóttir afrekskona í sundi, Kristín Ingólfsdóttir rektor HÍ, Styrmir Gunnarsson ritstjóri og Þorkell Sigurlaugsson framkvæmdastjóri þróunarsviðs HR.
Forseti Íslands, Hr. Ólafur Ragnar Grímsson, er verndari verðlaunanna.

