Verðlaunahafar

Verðlaunahafar 2011

Í flokki einstaklinga:BergÞór Grétar Böðvarsson tekur á mót verðlaunum sínum úr hendi forseta Íslands Ólafs Ragnars Grímssonar.

  • Bergþór Grétar Böðvarsson, fyrir að stuðla að jákvæðri og uppbyggilegri umræðu um geðsjúkdóma á Íslandi. 

 

 

 

Í flokki fyrirtækja/stofnana: Fulltrúar Hestamannafélagisins Harðar taka móti Hvatningarverðlaunum sínum

  • Hestamannafélagið Hörður, fyrir frumkvöðlastarf í hestaíþróttum fatlaðra barna og unglinga.

 

 

 

Í flokki umfjöllunar/kynningar:Umsjónarfólk sjónvarpsþáttarins, Með okkar augum, fagnar verðlaunum sínum ásamt forseta Íslands, Ólafi Ragnari Grímssyni.

  • Umsjónarfólk sjónvarpsáttarins „Með okkar augum“, fyrir frumkvöðlastarf í íslenskri dagskrárgerð.





Verðlaunahafar 2010

Harpa Dís Harðardóttir   

Í flokki einstaklinga

Harpa Dísa Harðardóttir

fyrir metnaðarfullt starf við gerð orlofshúss með góðu aðgengi fyrir fatlað fólk og áralanga baráttu fyrir réttindum þess.


Frá Reykjadal dvalargestir og starfsmaður á góðri stundu   

Í flokki fyrirtækja/stofnana *

Reykjadalur

fyrir ötult starf í þágu fatlaðra barna og ungmenna með rekstri sumarbúða og helgardvalar að vetri.


Margrét Dagmar Ericsdóttir

Í flokki umfjöllunar/kynningar *

Margrét Dagmar Ericsdóttir

fyrir myndina Sólskinsdrengurinn, sem aukið hefur skilning almennings á margbreytileika einhverfu.


 *  ATH. breyting gerð 2010 á að tveir flokkar fyrirtæki og stofnanir voru sameinaðir í einn flokk og nýr flokkur ummfjöllun/kynning kemur inn sem þriðji flokkurinn til að auka breidd þeira sem eiga möguleika á tilnefningu.

Verðlaunahafar 2009



Í flokknum einstaklingur:

Edda Heiðrún Backman, fyrir mikinn styrk, kjark og áræðni í að bæta aðstöðu sjúkra og fatlaðra, m.a. með söfnunarátakinu „Á rás fyrir Grensás“.

Í flokknum fyrirtæki:

SÍBS, fyrir fyrirmyndaraðgengi við SÍBS-húsið, Síðumúla 6.

Í flokknum stofnun:

Öskjuhlíðarskóli, fyrir að gera nemendur hæfa til þátttöku í samfélaginu á sem flestum sviðum eftir því sem geta þeirra leyfir.

Verðlaunahafar 2008

Í flokknum einstaklingur:

Guðjón Sigurðsson, fyrir sýnileika, dugnað og árangur í málefnum fatlaðra.

Guðjón Sigurðsson tekur við Hvatningarverðlaunum ÖBÍ úr hendi Forseta Íslands, Ólafi Ragnari Grímssyni

Í flokknum fyrirtæki:

Tónstofa Valgerðar, fyrir frumkvöðlastarf í þá veru að nemendur með sérþarfir njóti forgangs til tónlistarnáms.

Valgerður Jónsdóttir tekur við Hvatningarverðlaunum ÖBÍ úr hendi Forseta Íslands, Ólafi Ragnari Grímssyni

Í flokknum stofnun:

Akureyrarbær – búsetudeild, fyrir frumkvöðlastarf í útfærslu á “Independent living”, notendastýrðri þjónustu fyrir fatlaða.

Kristín Sigursveinsdóttir, fyrir hönd Akureyrarbæjar tekur við Hvatningarverðlaunum úr hendi Forseta Íslands Ólafi Ragnari Grímssyni


Verðlaunahafar 2007

Í flokknum fyrirtæki:

Móðir náttúra fyrir mikilvægt frumkvöðlastarf til aukinnar atvinnuþátttöku fatlaðra.

Valentína Björnsdóttir, framkvæmdastjóri og Karl Eiríksson yfirkokkur hjá Móður náttúru, hlutu hvatningarverðlaun ÖBÍ í flokki fyrirtækja.





Í flokknum stofnun:

Starfsendurhæfing Norðurlands fyrir uppbyggingu starfsendurhæfingar sem byggir á samstarfi ólíkra starfsstétta og öflugu samfélagslegu tengslaneti.

Geirlaug G. Björnsdóttir, framkvæmdastjóri Starfsendurhæfingar Norðurlands ásamt Soffíu Gísladóttur framkvæmdastjóra SÍMEY með verðlaunin í flokki stofnana sem Starfsenduhæfin Norðulands fékk.

 

Freyja Haraldsdóttir með verðlaun sín í flokki einstaklinga.

Í flokknum einstaklingur:

Freyja Haraldsdóttir fyrir áhrif sín til að breyta viðhorfum fólks til fatlaðra og fyrir að vera frumkvöðull í að koma á fót notendastýrðri þjónustu.







Þetta vefsvæði byggir á Eplica