Verðlaunin

Verðlaunin

Þórunn Árnadóttir er hönnuður verðlaunanna. Þórunn Árnadóttir iðnhönnuður

Hún útskrifaðist af vöruhönnunardeild Listaháskóla Íslands vor 2007 og var í starfsnámi hjá Tomoko Azumi í London sumarið 2007. Þórunn tók þátt í Kviku, hönnunarsýningu sem sett var upp á Kjarvalsstöðum og stóð vor og sumar 2007. Þórunn er fædd 1982 og í hópi margra ungra íslenskra hönnuða sem eru að hasla sér völl hér heima og erlendis. Árið 2007 hlaut hún tilnefningu af hönnunarblaðinu Forum AID, sem einn af 10 áhugaverðustu útskriftarnemum í hönnun/arkitektúr á Norðurlöndunum. 

Við hönnun verðlaunagripsins hefur Þórunn samfélagið í huga. Fólkið er byggingareiningar eða púsl þess. Verkið er gert úr fjölda skífa úr marglitu plexígleri allar nema ein sem er stálskífa. Skífurnar úr plexíglerinu eru allar jafn þykkar að undanskilinn einni sem er dálítið öðruvísi, það gerir henni erfitt að falla inn í púslið. Silfurskífan er eina skífan sem hefur tengingu við þá skífu en einnig hinar skífurnar. Silfurskífan er tákn verðlaunahafans sem er burðarpúslið, tenging á milli þeirra sem á einhvern hátt eru öðruvísi og hinna sem eru eins. Spegilskífan er um leið heiðursviðurkenning til verðlaunahafans, sem speglast þar í, hann á heiðurinn skilinn.Hvatningarverðlaun ÖBÍ-gulir litir

Skilaboð Þórunnar eru þessi, með hennar orðum, „við eigum að opna fyrir alla tengimöguleika, ekki vera svo þröngsýn að við gerum ráð fyrir því að allir séu eins og passi í sama farið. Þetta á við um allt aðgengi að þátttöku í samfélaginu, hvort sem við erum að tala um samgöngur, samskipti eða viðskipti ..”



Til baka, Senda grein, Prenta greinina

 





þetta vefsvæði byggir á eplica. eplica vefurvefur - nánari upplýsingar á heimasíðu eplica.