Stefnuskrá Kvennahreyfingar Öryrkjabandalags Íslands
-MERKI-KVENNAHREYFING-OBI.gif)
Kvennahreyfing Öryrkjabandalags Íslands er umræðuvettvangur og baráttutæki fatlaðra og langveikra kvenna með það markmið að skapa eitt samfélag fyrir alla, þar sem jafnrétti ræður á öllum sviðum - samfélag þar sem fatlaðar og langveikar konur hafa tækifæri til þess að þroskast og nýta hæfileika sína.
Hreyfingin er frjáls og óháður vettvangur sem hefur það að markmiði að efla gagnrýna umræðu um málefni fatlaðra og langveikra kvenna á öllum sviðum þjóðlífsins.
Hlutverk, markmið og tilgangur Kvennahreyfingar Öryrkjabandalags Íslands er:
- að nýta styrkleika og reynsluheim fatlaðra og langveikra kvenna til stuðnings öllum konum og til að eyða fordómum.
- að stuðla að auknum atvinnutækifærum fatlaðra og langveikra kvenna. Vera aflvaki nýrra leiða sem geta orðið fötluðum og langveikum konum til hagsbóta.
- að vera vettvangur fyrir fatlaðar og langveikar konur til að koma sjónarmiðum sínum á framfæri og skapa aðstæður til tjáningar og til skoðanaskipta meðal fatlaðra og langveikra kvenna.
- að stuðla að víðtækri og sýnilegri samstöðu meðal fatlaðra og langveikra kvenna til að bæta fjárhag sinn, menntun og lífsgæði.
- að efla samvinnu meðal fatlaðra og langveikra kvenna inn á við.
- að fylgjast með rannsóknum, íslenskum sem erlendum og vera tengiliður milli rannsakenda og Öryrkjabandalagsins.
Skipulögð forysta hópsins verði í höndum 7 kvenna þar af verði tvær tilnefndar sem sérstakar talskonur Kvennahreyfingarinnar og einn fulltrúi sem hafi seturétt á aðalfundi og aðalstjórnarfundum ÖBÍ. Sá fulltrúi hafi málfrelsi og tillögurétt en ekki atkvæðisrétt. Forysta hópsins leggur fram tillögu á fundi Kvennahreyfingarinnar um talskonur og fulltrúa fyrir hönd hópsins í mars ár hvert. Forystan er skipuð af framkvæmdastjórn Öryrkjabandalagsins samkvæmt tillögum frá Kvennahreyfingunni.
Kvennahreyfingin skal leggja fram fjárhagsáætlun fyrir 1. febrúar ár hvert. Fjárhagsáætlun Kvennahreyfingar skal taka mið af kostnaði við fundi, ráðstefnur, rannsóknir, fyrirlestra og ferðir sem nausynlegar verða á starfsárinu.
Samþykkt samhljóða á stofnfundi 8 mars 2005
