Öryrkjabandalagið stóð fyrir tískusýningu í Kringlunni 14. apríl síðastliðinn. Þetta var þó ekki hefðbundin tískusýning þar sem nýjasta tíska í fatnaði var sýnd heldur mættu á svið fulltrúar öryrkja sem eiga við ýmsan vanda að stríða í sínu daglega lífi. Látum myndirnar frá sýningunni ásmat þeim texta sem lesinn var upp á sýningunni útskýra málin nánar.











