Í framhaldi af góðri vinnu starfshópa, sem skilað af sér skýrlsunni Eitt samfélag fyrir alla - Hugmynd að betra samfélagi, var tekin sú ákvörðun að skipa stýrihóp til að vinn ítarlegar þær hugmyndir sem fram voru settar í skýrslunni. Kallað var eftir að fulltrúar allra þingflokka kæmu að þessri vinnu. Í byrjun hausts 2006 hófst starf stýrihópsins. Þann 14. febrúar 2007 var síðan lokafundur stýrihóps. Fyrir þann tíma hafði formönnum þingflokka verið sendur spurningalisti þar sem kallað var eftir hver stefna flokksins væri í málefnum fatlaðra og eldri borgara. Fulltrúar allra flokka mættu til að kynna svör síns flokks. Hér fyrir neðan birtast nokkrar myndir frá fundinum.






