Fulltrúar ÖBÍ í erlendu samstarfi
HNR - Handikaporganisasjonenes Nordiska Råd
Samstarfsvettvangur norrænu Öryrkjabandalaganna. Formenn og framkvæmdastjórar samtakanna sitja í ráðinu.
Fulltrúar ÖBÍ: Guðmundur Magnússon, formaður og Lilja Þorgeirsdóttir, framkvæmdastjóri.
NSH - Nordiska Samarbetsorganet för Handikappfrogor
Undirstofnun norrænu ráðherranefndarinnar. Félagsmálaráðherrar Norðurlandanna skipa hver sinn fulltrúa í stjórn NSH. Eitt af mörgum verkefnum NSH er að veita styrki til ýmissa samstarfsverkefna Norðurlandanna í málefnum fatlaðra.
Fulltrúi ÖBÍ í úthlutunarnefndinni er:
Aðalfulltrúi: Hjördís Anna Haraldsdóttir
Varafulltrúi: Lilja Þorgeirsdóttir.
NHR - Nordiska Handikappolitiska Rådet
Ráðgefandi og stefnumarkandi stofnun varðandi málefni fatlaðra fyrir norrænu ráðherranefndina og samstarfsaðila hennar. Ráðið hefur með að gera norrænt samstarf í málefnum fatlaðra.
Fulltrúar Íslands í NHR eru frá Öryrkjabandalagi Íslands, menntamálaráðuneytinu og kjörnir
Fulltrúi ÖBÍ: Guðmundur Magnússon
Varafulltrúi: Lilja Þorgeirsdóttir
Handikappede Kvinner I Norden
Nýleg samtök sem hafa fengið styrk frá NSH (Nordiska Samarbetsorganet för Handikappfrogor). Hópurinn vinnur að réttindamálum fatlaðra kvenna. Konum frá Eystrasaltslöndunum hefur verið boðið þátttaka í þessu samstarfi.
Fulltrúi ÖBÍ: Valgerður Ó. Auðunsdóttir
EDF - European Disbility Forum
Samstarfsvettvangur heildarsamtaka fatlaðra í Evrópusambandslöndunum. Bæði er um að ræða fulltrúa öryrkjabandalaga aðildarlandanna og frjálsra félagasamtaka (NGO´s) má nefna sem dæmi samtök hreyfihamlaðra, blindra, heyrnarlausra og fleiri.
Fulltrúi ÖBÍ: Guðmundur Magnússon
Varafulltrúi: Hjördís Anna Haraldsdóttir
RI - Rehabilitation International
Alþjóðleg samtök sem vinna með SÞ, stjórnvöldum og samtökum fatlaðra. Innan RI eru starfandi 6 nefndir sem fjalla m.a. um atvinnumál fatlaðra, menntamál, félagsleg málefni, mál af læknisfræðilegum toga og skipulagsmál. Í hverju landi er einn aðalfulltrúi starfandi (nat. secretary).
Fulltrúi ÖBÍ: Guðmundur Magnússon
RI-ECA - Evrópudeild RI. RI starfar að nokkru eftir heimshlutaskiptingu. Þannig hafa aðalfulltrúar í Evrópu með sér formlegt samband og auk þess sérstaka aðalfulltrúar frá löndum innan Evrópusammbandsins (RI-ECA). Aðalfulltrúi ÖBÍ er þeirra á meðal.
DPI - Disabled People International
Alþjóðasamband fatlaðra. Stefna DPI er að styðja heildarsamtök fatlaðra í að efla mannréttindi og fjárhagsleg og félagsleg réttindi fatlaðra.
Fulltrúi ÖBÍ: Guðmundur Magnússon
