Stefna ÖBÍ 2009-2013
Vegvísir fyrir ÖBÍ, sem lýsir á einfaldan hátt meginstefnu þess og gefur stjórnendum, starfsmönnum og félagsmönnum bandalagsins gott yfirlit til að vinna út frá. Hann tekur á hlutverki, kjörorði, framtíðarsýn, gildum og markmiðum bandalagsins.
Stefna ÖBÍ 2009-2013 (bæklingur á pdf-formi 2,8 Mb). Hljóðskrá af stefnu ÖBÍ
„Svona vinnum við” - plakat - viðmið fyrir innra starf ÖBÍ. Hljóðskrá af „Svona vinnum við“
Stefna Öryrkjabandalags Íslands 2009-2013
(texti bæklingsins)
Þessum bæklingi er ætlað að vera vegvísir fyrir Öryrkjabandalag Íslands (ÖBÍ) og lýsa á einfaldan hátt meginstefnu bandalagsins og gefa stjórnendum þess, starfsmönnum og félagsmönnum gott yfirlit til að vinna út frá. Í honum kemur fram hlutverk, kjörorð, framtíðarsýn, gildi og markmið bandalagsins.
Hlutverk
Hlutverk ÖBÍ er:
- að vinna að samfélagslegu réttlæti og bættum lífsgæðum og kjörum óháð líkamlegu eða andlegu atgervi einstaklinga,
- að vera stefnumótandi í réttindamálum fatlaðra, málsvari og frumkvöðull í málefnum þeirra,
- að vera þekkingarmiðstöð um málefni fatlaðra og ráðgjafi og stoð aðildarfélaganna.
Kjörorð
Við stöndum fyrir réttlæti – Ekkert um okkur án okkar!
Gildi
Starfsmenn jafnt sem félagsmenn hafa gildi ÖBÍ, þátttaka, jafnræði og ábyrgð, að leiðarljósi í því hvernig þeir eiga að haga samskiptum sín á milli og hvernig byggja má upp menningu og samfélag þar sem fólki líður vel. Þetta er hluti af heildarmyndinni til að gera framtíðarsýn ÖBÍ að veruleika. Rétt gildi eru því talin ein af lykilforsendum þess að árangur náist.
Þátttaka
- Við tökum þátt í samfélaginu, erum virk, sýnum atorku og höfum áhrif. Við menntum okkur og tökum þátt í því að vinna að samfélagslegu réttlæti og bættum lífsgæðum fyrir alla.
Lífskjör – Atvinna – Áhrif – Samfélag – Virkni – Valdefling – Menntun
Jafnræði
- Við sýnum samstarfsfélögum okkar og öðrum virðingu. Við stuðlum að réttlæti og lífsgæðum fyrir alla. Við sýnum sjálfstæði í orði og verki og stuðlum að góðu aðgengi fyrir alla, alls staðar.
Réttlæti – Virðing – Sjálfstæði – Lífsgæði – Gott aðgengi – Viðhorf – Hugmyndafræði
Ábyrgð
- Við erum ábyrg fyrir störfum okkar og sýnum ábyrgð gagnvart félagsmönnum og samfélaginu. Við vinnum fagmannlega og af heilindum. Við leggjum áherslu á samvinnu og treystum hvert öðru. Frumkvæði og framsýni einkennir aðildarfélaga ÖBÍ.
Styrkur – Traust – Fagmennska – Samvinna – Heilindi – Framsýni – Frumkvæði
Framtíðarsýn
Framtíðarsýn Öryrkjabandalagsins er eftirfarandi:
- Eitt samfélag fyrir alla.
- ÖBÍ verði frumkvöðull og fyrirmynd í málefnum fólks með fötlun.
- ÖBÍ verði viðurkennt og virkt í umræðu, ákvarðanatöku og stefnumótun er lýtur að málefnum fólks með fötlun á öllum sviðum samfélagsins.
- ÖBÍ verði gagnvirk þekkingarmiðstöð um málefni fatlaðra og hafi frumkvæði að rannsóknum. ÖBÍ hafi víðtækt samstarf við stjórnvöld, háskólasamfélagið og innlend og erlend samtök.
- ÖBÍ hafi á að skipa öflugu fólki sem hefur hæfni og þekkingu til að fjalla um málefni bandalagsins og sé tilbúið að taka þátt í þeim.
- Samningur Sameinuðu þjóðanna um réttindi fólks með fötlun verði að fullu virtur.
Markmið
- Markmiðin eru þau atriði sem ÖBÍ vill leggja áherslu á til að ná framtíðarsýninni.
Þjónusta
- Aukin ánægja félagsmanna aðildarfélaga ÖBÍ með starfsemi bandalagsins.
Áherslur út á við gagnvart samfélaginu
- Virkt samstarf við stjórnvöld og sveitarfélög.
- Virk þátttaka í umræðu og ákvarðanatöku innan samfélagsins.
- Virk þátttaka í umræðu og ákvarðanatöku um okkur við lagasetningu og innan framkvæmdarvaldsins.
- Viðurkenning á slagorði bandalagsins Við stöndum fyrir réttlæti – Ekkert um okkur án okkar!
- Góð þekking á málefnum fatlaðra.
- Sáttmáli Sameinuðu þjóðanna verði lögfestur árið 2009 og kynntur um allt land.
- Öflugt, virkt erlent samstarf.
- Stuðlað verði að einu samfélagi fyrir alla.
- Opinbert eftirlit og réttindagæsla með þjónustu fatlaðra verði styrkt.
- Öflug tengsl við fjölmiðla.
- Athygli sé vakin á því sem vel er gert.
- Samstarf við háskólasamfélagið verði eflt.
Áherslur í innra starfi
- Öflug upplýsingagjöf og fræðsla um starfsemi aðildarfélaganna.
- Skýr lagasetning.
- Stefna og framtíðarsýn ÖBÍ sé öllum kunn.
- Góð samvinna, samstaða og liðsheild.
- Öflugur og gagnvirkur innri vefur.
- Starf ungs fólks með fötlun sé eflt.
- Viðmiðin „Svona vinnum við“ séu virt.
Áherslur gagnvart starfsmönnum og þátttakendum aðildarfélaganna
- Faglegar ráðningar.
- Öflug fræðsla og starfsþróun, auk nýliðafræðslu.
- Virkja fleiri sem vinna að málefnum ÖBÍ.
- Starfsaðstaða sé til fyrirmyndar.
- Frumkvæði og áhugasvið starfsmanna og félagsmanna fái að njóta sín.
- Við séum til fyrirmyndar og vinnum samkvæmt sáttmála Sameinuðu þjóðanna.
- Ekkert um okkur án okkar!
Samþykkt 21. janúar 2009 á aðalstjórnarfundi ÖBÍ
