Fulltrúar ÖBÍ í erlendu samstarfi
HNR - Handikapporganisationernas Nordiska Råd
Samstarfsvettvangur norrænu Öryrkjabandalaganna. Formenn og framkvæmdastjórar norrænu öryrkjabandalaganna sitja í ráðinu.
Fulltrúar ÖBÍ: Guðmundur Magnússon, formaður og Lilja Þorgeirsdóttir, framkvæmdastjóri ÖBÍ.
Nordens Välfärdscenter (NVC)
NVC er undirstofnun norrænu ráðherranefndarinnar í velferðarmálum sem tók til starfa 1. janúar 2009. Þá sameinuðust undir einn hatt 5 undirstofnanir í velferðarmálum þar á meðal NSH (Nordiska samarbetsorganet för handikappfrågor). Félagsmálaráðherrar norðurlandanna skipa hver sinn fulltrúa í stjórn NSH. Eitt af mörgum verkefnum NSH er að veita styrki til ýmissa samstarfsverkefna Norðurlandanna í málefnum fatlaðra. Fulltrúi ÖBÍ í úthlutunarnefndinni eru:
Aðalfulltrúi: Hjördís Anna Haraldsdóttir, varaformaður ÖBÍ.
Varafulltrúi: Lilja Þorgeirsdóttir, framkvæmdastjóri ÖBÍ.
NHR - Nordiska Handikappolitiska Rådet
Ráðgefandi og stefnumarkandi ráð varðandi málefni fatlaðra fyrir norrænu ráðherranefndina og samstarfsaðila hennar. Ráðið hefur með að gera norrænt samstarf í málefnum fatlaðra.
Fulltrúar Íslands í NHR eru frá Öryrkjabandalagi Íslands, menntamálaráðuneytinu og kjörnir til þriggja ára í senn.
Fulltrúi ÖBÍ: Guðmundur Magnússon, formaður ÖBÍ.
Varafulltrúi: Lilja Þorgeirsdóttir, framkvæmdastjóri ÖBÍ.
Handikappede Kvinner i Norden
Samtök sem hafa fengið styrk frá NSH (Nordiska Samarbetsorganet för Handikappfrågor). Hópurinn vinnur að réttindamálum fatlaðra kvenna. Konum frá Eystrasaltslöndunum hefur verið boðin þátttaka í þessu samstarfi.
Fulltrúi ÖBÍ: Valgerður Ó. Auðunsdóttir
EDF - European Disability Forum
Samstarfsvettvangur heildarsamtaka fatlaðra í Evrópusambandslöndunum. Bæði er um að ræða fulltrúa öryrkjabandalaga aðildarlandanna og frjálsra félagasamtaka (NGO´s), má nefna sem dæmi samtök hreyfihamlaðra, blindra, heyrnarlausra og fleiri heildarsamtaka fatlaðra.
Fulltrúi ÖBÍ: Guðmundur Magnússon, formaður ÖBÍ.
Varafulltrúi: Hjördís Anna Haraldsdóttir, varaformaður ÖBÍ
Undirbúningshópur fyrir stofnun EAPN (European Anti Poverty Network)
Aðalfulltrúi: Þorbera Fjölnisdóttir
Varafulltrúi: Guðbjörg Kr. Eiríksdóttir
RI - Rehabilitation International
Alþjóðleg samtök sem vinna með Sameinuðu þjóðunum, stjórnvöldum og samtökum fatlaðra. Innan RI eru starfandi 6 nefndir sem fjalla m.a. um atvinnumál fatlaðra, menntamál, félagsleg málefni, mál af læknisfræðilegum toga og skipulagsmál. Í hverju landi er einn aðalfulltrúi starfandi (nat. secretary).
Aðalfulltrúi ÖBÍ: Guðmundur Magnússon, formaður ÖBÍ.
RI-ECA - Evrópudeild RI.
RI starfar að nokkru eftir heimshlutaskiptingu. Þannig hafa aðalfulltrúar í Evrópu með sér formlegt samband og auk þess sérstaka aðalfulltrúa frá löndum innan Evrópusammbandsins (RI-ECA). Aðalfulltrúi ÖBÍ hjá RI er þeirra á meðal.
DPI - Disabled People International
Alþjóðasamband fatlaðra. Stefna DPI er að styðja heildarsamtök fatlaðra í að efla mannréttindi og fjárhagsleg og félagsleg réttindi fatlaðra.
Fulltrúi ÖBÍ: Guðmundur Magnússon, formaður ÖBÍ.
