Námssjóður Sigríðar Jónsdóttur
Námssjóður Sigríðar Jónsdóttur
Styrkir úr námssjóði Sigríðar Jónsdóttur eru veittir til öryrkja til hagnýts náms, verklegs eða bóklegs, svo og til náms í hvers konar listgreinum. Einnig er heimilt að styrkja þá sem vilja sérhæfa sig til starfa í þágu þroskaheftra.
Auglýst er í dagblöðum í mars - apríl eftir umsóknum um styrki. Úthlutun úr sjóðnum fer fram árlega um 11. júní.
Fyrirspurnir má senda til Guðríðar Ólafsdóttur, í tölvupósti gudridur (hjá) obi.is eða hafa samband í síma 530-6700.
Umsóknareyðublað er væntanlegt.
Stjórn sjóðsins skipa:
Hafliði Hjartarson
Björg S. Blöndal
Steinunn Þóra Árnadóttir
Starfsmaður sjóðsins er Guðríður Ólafsdóttir og veitir hún nánari upplýsingar.
Skipulagsskrá námssjóðs Sigríðar Jónsdóttur
Tilurð sjóðsins
Sigríður Jónsdóttir arfleiddi Öryrkjabandalag Íslands að íbúð sinni eftir sinn dag og skyldi þar af myndaður námssjóður fyrir öryrkja svo og þá sem menntuðu sig sérstaklega í þágu þroskaheftra. Andvirði íbúðarinnar varð 6.5 milljónir króna sem varð stofnfé sjóðsins. Samkvæmt lögum sjóðsins má ekki ganga á höfuðstólinn.
Árið 1999 gaf Sigurgeir Steinsson, sjóðunum tveim hjá ÖBÍ: Oddssjóði og Sigríðarsjóði húseign sína og kom í hlut Sigríðarsjóðs 4.5 milljónir króna.
Fyrsta úthlutun fór fram vorið 1995, 11. júní, á fæðingardegi Sigríðar Jónsdóttur. Hefur úthlutun æ síðan farið fram á afmælisdegi hennar eða sem næst þeim degi.
Í 2. tölublaði tímarits ÖBÍ 2004, er grein um Sigríðarsjóð.

