Viðburðadagatal
Notendastýrð persónuleg aðstoð (NPA) - Sjálfstætt líf, tálsýn eða veruleiki?
Ráðstefna FFA, Félags- og tryggingamálaráðuneytið og ÖBÍ í Salnum í Kópavogi fimmtudaginn 3 desember
FFA - Fræðsla fyrir fatlaða og aðstandendur, Félags- og tryggingamálaráðuneytið og Öryrkjabandalag Íslands standa fyrir ráðstefnunni, Notendastýrð persónuleg aðstoð (NPA) - Sjálfstætt líf, tálsýn eða veruleiki? í Salnum Kópavogi þann 3. desember nk. kl. 13.00 -15.30.
Dagskrá
13.00. Setning. Árni Páll Árnason, félags- og tryggingamálaráðherra.
13.10. Þjónusta eða sjálfræði? Ólafur Páll Jónsson heimspekingur og lektor við Menntavísindasvið Háskóla Íslands.
13.30. Hugmyndafræði og saga samtaka um sjálfstætt líf. Adolf D. Ratzka, Ph.D.Stofnandi og forstjóri Stofnunar um sjálfstætt líf í Svíþjóð.
13.50. Tilraunaverkefni um notendastýrða þjónustu á Íslandi – helstu
niðurstöður. María Játvarðardóttir, félagsráðgjafi.
14.10. Kaffihlé.
14.30. Sjálfstætt líf og Notendastýrð persónuleg aðstoð (NPA).Adolf D. Ratzka, Ph.D.
14.50. Leiðin framundan. Kolbrún Dögg Kristjánsdóttir, formaður Samtaka um sjálfstætt líf á Íslandi .
15.10. Leiðin framundan. Hallgrímur Eymundsson, talsmaður um stofnun miðstöðvar um NPA.
15.30. Ráðstefnuslit. Guðmundur Magnússon, formaður ÖBÍ.
Ráðstefnustjóri: Gerður A. Árnadóttir, formaður Landssamtakanna Þroskahjálp.
Skráning fer fram hjá Öryrkjabandalagi Íslands í síma 530-6700 eða í tölvupósti anna@obi.is
Erindi á ráðstefnunni verða þýdd á táknmál og tónmöskvakerfi verður í boði.
Fyrirlestrar Adolfs D. Ratzka fara fram á ensku en eru rittúlkaðir yfir á íslensku.
Ráðstefnan er öllum opin og aðgangur ókeypis.
Ráðstefnan er liður í Progress áætlun Evrópusambandsins gegn mismunun.
Aðilar að FFA eru: Ás styrktarfélag, Landssamtökin Þroskahjálp, Sjálfsbjörg landssamband fatlaðra og Styrktarfélag lamaðra og fatlaðra.

