Viðburðadagatal
Dagskrá Rauðakrosshússins vikuna 12.-15. janúar, kl.12.00-19.00
Borgartúni 25, 105 Reykjavík
Á mánudaginn verður lokað í Rauðakrosshúsinu.
Á þriðjudaginn byrjar teikninámskeið. Baujan sjálfstyrking byrjar aftur og um að gera að skrá sig sem fyrst þar sem fáir komast að í einu.
Á miðvikudag kemur Toshiki Toma og fjallar um trúarbrögð í Japan og áhrif þeirra á menninguna. Það er fyrsti hluti af þremur sjálfstæðum fyrirlestrum. Hljómlistarmaðurinn Ágúst Atlason úr Ríó Tríó verður með fyrsta gítartímann á miðvikudag, en gítarkennslan er eingöngu ætluð fólki 35 ára og yngri.
Á fimmtudaginn verður skemmtilegt verkefni Rauða krossins kynnt fyrir gestum, en það er verkefni sem snýr að konum og börnum af erlendum uppruna og kallast "Félagsvinur - Mentor er málið". Spennandi fyrir þá sem vilja gerast sjálfboðaliðar og kynnast nýju fólki.
Á föstudaginn verður fjallað um gleðina og leiðir til að auka gleði í lífinu og svo verður dansað Salsa áður en við ljúkum vikunni með hláturjóga.
Sjálfboðaliðar Rauða krossins veita ráðgjöf og stuðning í Rauðakrosshúsinu.
Dagskrá Rauðakrosshússins vikunna 18.-22. janúar nk.

