Viðburðadagatal

Dagskrá Rauðakrosshússsins vikuna 18.-22. janúar

Borgartúni 25, 105 Reykjavík

18.01.2010 - 22.01.2010, kl.12:00 - 19:00 ÖBÍ

Vikan hefst á fyrirlestri og spjalli um það að eldast þegar Bernharður Guðmundsson kemur á mánudaginn.
Hraðskákmót undir stjórn Róberts Lagerman og tálgunarnámskeið Valdórs verður einnig á mánudaginn og því mikið um að vera í Rauðakrosshúsinu.

Á þriðjudaginn heldur teikninámskeið áfram og skiptifatamarkaðurinn verður á sínum stað frá kl.16 til 19.
Toshiki Toma fjallar um búddisma í Japan á miðvikudaginn og um að gera að kynna sér þau trúarbrögð og áhrif þeirra á japanskt samfélag.

Ráðgjöf fyrir innflytjendur, bæði sérsniðin lögfræðiaðstoð og stuðningur verður framvegis í húsinu alla miðvikudaga frá kl.14 til 16.

Á fimmtudaginn er upplagt fyrir þá sem eiga góða hunda að kynna sér hvernig má láta gott af sér leiða og veita öðrum félagsskapmeð þeirra aðstoð.

Þá hefur frönskuhópur göngu sína á fimmtudaginn klukkan 12:30, en þar gefst fólki kostur á að æfa sig í að tala frönsku. Nauðsynlegt er að kunna einhverja frönsku til að taka þátt þar sem þetta er ekki byrjendanámskeið heldur spjall.

Á föstudeginum verður í Rauðakrosshúsinu fyrirlestur og umræða um Noreg og norska kerfið, því þrátt fyrir að margt sé líkt með Íslandi og Noregi þá er fjölmargt sem er frábrugðið. Umsjón hefur íslensk kona sem hefur verið búsett í Noregi til fjölda ára og hefur unnið mikið í stjórnsýslunni þar og þekkir kerfið því mjög vel.

Sjálfboðaliðar Rauða krossins veita jafningjaráðgjöf alla virka daga milli klukkan 12 og 17 í Rauðakrosshúsinu og þar má einnig fá sálfræðiaðstoð og lögfræðiráðgjöf. Prestar og djáknar hafa viðveru alla virka daga frá klukkan 14 til 16 og tilvalið að nýta sér þeirra þekkingu og reynslu.






þetta vefsvæði byggir á eplica. eplica vefsvæðivefsvæði - nánari upplýsingar á heimasíðu eplica.