Viðburðadagatal
Dagskrá Rauðakrosshússins 25.-29. janúar
Borgartúni 25, 105 Reykjavík
Næsta vika hefst á fyrirlestri um hvernig má standast álag og sporna við pirringi og reiði yfir smámunum.
Á mánudaginn hefur einnig enskuhópur göngu sína, en frönsku- og þýskuhópar verða á fimmtudeginum. Þessir hópar
eru fyrir þá sem kunna svolítið í viðkomandi tungumáli en þurfa að æfa sig að tala.
Á þriðjudaginn verða Býflugurnar með sinn vikulega fund í Rauðakrosshúsinu og allir velkomnir að takast á við skemmtileg verkefni með þeim.
Toshiki Toma fjallar á miðvikudaginn um siði og venjur Japana, hvaðan það kemur og hver áhrif hinna mismunandi trúarbragða hafa verið.
Línudans verður kenndur á fimmtudaginn á sama tíma og saumasmiðjan góða.
Noregur og norska kerfið verður áfram á föstudaginn og þeir sem eru eitthvað að spá í nágrönnum okkar ættu endilega að drífa sig.
Kolbeinn frá Betra nám verður svo með minnistækninámskeið fyrir gesti Rauðakrosshússins.
Prestar/djáknar hafa viðveru í Rauðakrosshúsinu alla virka daga milli klukkan 14 og 16 og sjálfboðaliðar Rauða krossins veita stuðning og jafningjaráðgjöf á opnunartíma.
Dagskráin í heild (opnast í nýjum glugga á heimasíðu Rauðakrosshússins)

