Viðburðadagatal

Dagskrá Rauðakrosshússins 1.-5.febrúar

Borgartún 25,

01.02.2010 - 05.02.2010, kl.12:00 - 17:00 ÖBÍ

Sálrænn stuðningur verður á mánudaginn þar sem fjallað er um áhrif áfalla á andlega líðan fólks. Enskuhópurinn heldur áfram og sömuleiðis skákklúbburinn.

Á þriðjudaginn verður sögð reynslusaga konu sem varð móðir þegar hún var enn í 10. bekk, en sonur hennar er nú sjálfur í efsta bekk grunnskóla. Hún talar um áfallið, fordómana, stuðninginn og árangurinn. Fyrirlestur sem kemur skemmtilega á óvart.

Lilja frá Art of living kennir síðan gestum að anda rétt, íhuga og lifa meira í núinu í stað þess að velta sér upp úr gærdeginum.

Á miðvikudaginn verður fyrsti fyrirlesturinn af þremur um ræktun fyrir sumarið og í þetta sinn verður sjónum okkar beint að sumarblómunum.

Á fimmtudaginn hefst námskeið fyrir byrjendur í fluguhnýtingum og nauðsynlegt að skrá sig á það, en þetta er fyrsti hluti af fjórum.

Vikunni lýkur síðan með trommuhring þar sem allir geta lært bumbuslátt og búið til rythma saman. Ef þú átt trommu (bongo-, Congas- eða djembe-) endilega kipptu henni með!

Sjálfboðaliðar Rauða krossins veita stuðning og jafningjaráðgjöf á opnunartíma Rauðakrosshússins og prestar/djáknar eru með viðveru mánudaga til föstudaga milli klukkan 14 og 16.

ATH nýtt! - ráðgjöf fyrir íbúa af erlendum uppruna.

Alla miðvikudaga kl. 14:00-16:00 er boðið upp á ráðgjöf fyrir innflytjendur á Íslandi í Rauðakrosshúsinu. Ráðgjöfin er viðbót við þá aðstoð sem nú þegar er í boði.  Ekki er hægt að panta tíma. Ef þörf er á túlki þarf að tilkynna starfsmönnum Rauðakrosshússins það eigi síðar en degi fyrir heimsókn þ.e. á þriðjudegi í síma 570 4000.

Lögfræðingarnir sem veita ráðgjöf í Rauðakrosshúsinu eru: Gentiana Collaku og Katla Þorsteinsdóttir.

 






þetta vefsvæði byggir á eplica. eplica vefsvæðivefsvæði - nánari upplýsingar á heimasíðu eplica.