Viðburðadagatal
Dagskrá Rauðakrosshússins 9.-12. febrúar.
Borgartúni 25, 105 Rv.
Vinsamlega athugið að Rauðakrosshúsið er lokað mánudaginn 8. febrúar.
Þriðjudaginn 9. febrúar verður spennandi verkefni fyrir atvinnuleitendur kynnt sem heitir Félagsvinir atvinnuleitenda. Áhugasamir eru eindregið hvattir til að taka þátt í verkefninu og hvetja aðra til að mæta.
Miðvikudagurinn hefst á umfjöllun og kennslu um ræktun mat- og kryddjurta og tálgunarnámskeiðið heldur áfram sama dag.
Skrapplilstakonan Aðalheiður Einarsdóttir kemur að nýju með föndurtímann á fimmtudaginn.
Á föstudaginn verður gestum kennt að þrífa tölvurnar sínar og ná í ókeypis vírusvarnir á netinu.
Vikunni lýkur á bingó og hláturjóga.
Sjálfboðaliðar Rauða krossins veita stuðning og jafningjaráðgjöf í Rauðakrosshúsinu og prestar og djáknar eru með daglega viðveru milli klukkan 14 og 16.
Ýmislegt fleira er í boði sjá dagskrá vikunnar

