Viðburðadagatal

Dagskrá Rauðakrosshússins 9.-12. mars

Borgartúni 25, 105 Reykjavík

09.03.2010 - 12.03.2010, kl.12:00 - 17:00 ÖBÍ

ATH! Lokað er í Rauðakrosshúsinu mánudaginn 8. mars.

Á þriðjudaginn verður mikil hópastarfsemi í húsinu auk þess sem Ragnheiður djákni ætlar
að leysa nokkrar spaugilegar þrautir sem tengjast kirkjunni.

Á miðvikudaginn verður fjallað um samskipti í lit, Gunnar frá Capacent ráðningum gefur
góð ráð fyrir atvinnuviðtöl og síðan verða félagsvinir atvinnuleitenda með umræður og vinnuhópa
þar sem líðan atvinnuleitenda og vandamál þeirra.

Fluguhnýtingahópur verður á fimmtudaginn þar sem allir hjálpast að og fólk hvatt til að taka með sér hnýtingastand ef það getur. Það er takmarkaður fjöldi sem kemst að svo að um að gera að skrá sig.

Á föstudaginn verður fjallað um markmiðasetningu, meðvirkni og hvernig á að standast álag.
Námskeiðið Barnið komið heim hefst einnig þann 13.mars, en þá er fyrsti hluti af þremur fyrir verðandi og nýorðna foreldra. Nauðsynlegt er að skrá sig.

Sjálfboðaliðar Rauða krossins taka á móti gestum í Rauðakrosshúsinu og veita stuðning og jafningjaráðgjöf.

Prestar og djáknar hafa daglega viðveru milli klukkan 14 og 16.

Dagskrá Rauðakrosshússins 9.-12. mars nk.






þetta vefsvæði byggir á eplica. eplica vefsvæðivefsvæði - nánari upplýsingar á heimasíðu eplica.