Viðburðadagatal
Dagskrá Rauðakrosshússins 11.-14. maí
Borgartúni 25, 105 Reykjavík
Athugið að Rauðakrosshúsið verður lokað á mánudaginn 10. maí.
Þriðjudagurinn verður skemmtilega fjölbreyttur að vanda og þar vil ég vekja sérstaklega athygli á hópvinnu Býflugnanna sem vinna undir yfirskriftinni Vinnum saman - Ný viðhorf. Þar vinna atvinnuleitendur saman að ýmsum verkefnum og samnýta orku sína í fjölbreytt verkefni.
Miðvikudaginn byrjar Elín Ebba iðjuþjálfi á umfjöllun um geðorðin tíu og mikilvægi þess að hugsa vel um andlega heilsu sína. Þann dag verður einnig kynning á innanlandsverkefnum Rauða krossins.
Á föstudaginn verður Aurelio Ferro með kennslu í að gera gómsæta pastarétti að hætti síns heimalands, Ítalíu. Sama dag verður kennsla í nokkrum undirstöðuatriðum í Kung Fu.
Við ljúkum síðan vikunni að vanda á hláturjóga.
Sérstök athygli er vakin á því að málþing Rauða kross Íslands
"Hvar þrengir að?" verður haldið í stofu 105 á Háskólatorgi föstudaginn 14. maí frá kl. 14 til 17.
Ekkert þátttökugjald er á málþinginu en áhugasamir eru vinsamlega beðnir að skrá sig á skraning@redcross.is.
Dagskrá vikunnar 11.-14. maí á heimasíðu Rauðakrosshússins

