Viðburðadagatal
Vorhristingur, kaffileikhús Halaleikhópsins
sýnt í Halanum, Hátúni 12, 16. maí kl. 17.00 - 19.00
Kaffileikhús Halaleikhópsins, Vorhristingur, föstudaginn 14. maí kl. 20.00 og sunnudaginn 16. maí kl. 17.00. Sýnt í Halanum, Hátúni 12, 105 Reykjavík.
Sýnd verða nokkur stuttverk, gjörningur og flutt tónlist, þau eru:
Aftur á svið, eftir Fríðu Bonnie Andersen í leikstjórn Árna Salomonssonar.
Snemma beygist krókurinn eftir Nínu Björk Jónsdóttur, leikstjóri Árni Salomonsson.
Frumfluttur verður 4. þáttur úr nýrri íslenskri óperu Reköldin, eftir Dag Sigurðarson og Einar Melax. Leikstjórn: Einar Melax og Gunnar Gunnarsson, Gunsó.
Prinsinn páskar partý pinnast, gjörningur og uppistand.
Conductive, flytur tónlistaratriði
Keg tríóið, flytur nokkur lög.
Eitthvað ljúffengt verður með kaffinu í hléi.
Miðaverð er 1200 kr. kaffiveitingar innifaldar.
Miðasala er í síma 897-5007 og á midi@halaleikhopurinn.is Nánari upplýsingar er að finna á vef félagsins www.halaleikhopurinn.is og á Facebook þar sem við erum með hóp sem við köllum Vorhristing http://www.facebook.com/reqs.php#!/event.php?eid=107259449316254. Endilega gangið í hann og deilið til vina ykkar.
Halaleikhópurinn.

