Vinnustaðir ÖBÍ
Vinnustaðir ÖBÍ
Vinnustaðir ÖBÍ, Hátúni 10, s. 552-6800, er fyrirtæki í eigu Öryrkjabandalags Íslands og rekið á ábyrgð þess. Starfsemi fyrirtækisins er innflutnings-, iðnaðar- og þjónustustarfsemi. Hjá fyrirtækinu starfa að jafnaði 36 fatlaðir starfsmenn í 18 stöðugildum og 8 ófatlaðir í 7,5 stöðugildum.
Markmið með rekstrinum er að veita fötluðum einstaklingum tímabundna vinnu í formi verkþjálfunar og/eða vinnu til frambúðar.
Í stjórn eru:
Jón Þór Jóhannsson
Magnús Pálsson
Elísabet Árnadóttir Möller
Framkvæmdastjóri: Þorsteinn Jóhannsson, netfang:vinnustadir@obi.is
Fyrirtækið samanstendur af þremur deildum:
Örtækni
Framleiðir og selur fjölmargar gerðir af tengiköplum fyrir tölvur og tæki tengd þeim. Sér um innflutning og sölu á skyldum búnaði. Samsetningu og lóðningu á prentplötum og vinnslu á ýmsum tilfallandi verkefnum fyrir fyrirtæki í rafmagns- og rafeindaiðnaði. Örtækni hefur einnig sérhæft sig í þjónustu með tölvu- og hugbúnað fyrir blinda.
Forstöðumaður: Hartmann Guðmundsson, netfang:ortaekni@ortaekni.is
Saumastofa ÖBÍ
Framleiðir og selur léttan vinnufatnað; jakka, sloppa, svuntur og buxur fyrir fólk í framreiðslu-, umönnunar- og þjónustustörfum. Helstu viðskiptavinir eru dvalarheimili, heilsustofnanir, hótel, gistiheimili, tannlæknar, veitingastaðir og sjúkrastofnanir. Framleiðsla og sala á fermingar- og kórkyrtlum.
Innflutningur og sala á efnum í léttan vinnufatnað.
Forstöðumaður: Guðrún Ásta Kristjánsdóttir, netfang: saumastofa@saumastofa.is
Ræstingadeild
Annast daglegar ræstingar, m.a á sameign í háhýsum og tengibyggingu í Hátúni 10, húsnæði Vinnustaða ÖBÍ og húsnæði Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins í Skógarhlíð 14, í Hafnarfirði og á Reykjavíkurflugvelli.

