Fréttir

Fyrirsagnalisti

20.12.2001 : Stjórnarráðsvefurinn uppfyllir að mestu hámarkskröfur um aðgengi fatlaðra

Undanfarnar vikur hefur verið unnið að því að gera ráðuneytisvefina þannig úr garði að þeir standist fyrsta viðmið (priority one) sem sett eru um aðgengi fatlaðra að vefsíðum. Þessi viðmið eru fengin frá World Wide Web Consortium en þar eru settir fram staðlar sem tengjast tölvutækni sem flestir vilja miða sig við. Lesa meira

12.12.2001 : Öryrkjabandalagið stefnir TR að nýju

Öryrkjabandalag Íslands hefur í umboði eins öryrkja höfðað mál gegn Tryggingastofnun ríkisins þar sem krafist er greiðslu á vangoldnum örorkulífeyri að andvirði 1,5 milljóna króna, auk dráttarvaxta. Lesa meira

23.11.2001 : Brjóta Flugleiðir mannréttindi?

Í yfirlýsingu frá Frank Mulchai og DPI segir einnig að alþjóðasamtökin muni taka málið upp á næsta fundi sínum. Hann ætli sjálfur að óska eftir því að samþykkt verði áskorun til Flugleiða um að fella reglurnar úr gildi. Frank Mulchai situr einnig í stjórn Evrópusamtaka fatlaðra en þau tóku málið upp á fundi Evrópusamtökum flugmálastjórna í gær. Lesa meira

23.11.2001 : Ekki gert til að auka öryggi

"Ef Flugleiðir vilja taka þátt í því með Öryrkjabandalaginu að leiða þetta mál farsællega til lykta er mikilvægt að þeir hætti þegar í stað að hafa í frammi blekkingar á borð við þær að þetta sé í samræmi við það sem gerist hjá flugfélögum í nágrannalöndum okkar", segir Garðar Sverrisson, formaður ÖBÍ. Lesa meira

22.11.2001 : Nýleg regla um að fatlaðir farþegar leggi til fylgdarmann í millilandaflugi

Flugleiðir hafa samþykkt, í kjölfar mótmæla frá Öryrkjabandalagi Íslands, ÖBÍ, að endurskoða reglu sem sett var sl. vor um að hreyfihamlaðir eða fatlaðir farþegar tilnefni ábyrgðarmann eða fylgdarmann þegar keyptur er farmiði í millilandafluginu. Lesa meira

22.11.2001 : Flugleiðir gagnrýna fréttaflutning útvarpsins

Fréttastofu Útvarps barst tilkynning frá Flugleiðum þar sem segir að farið hafi verið með rangt mál í hádegisfréttum þegar fullyrt var að félagið hefði ekki lagt fram gögn um að reglur Flugleiða um flutning hreyfihamlaðra farþega væru sambærilegar reglum annarra flugfélaga. Lesa meira

21.11.2001 : Læt engan annan taka ábyrgð á mér

„Ég ætla ekki að gefast upp fyrr en þessar reglur verða afnumdar,“ segir Anna Geirsdóttir, heimilislæknir og borgarfulltrúi, sem er ekki sátt við starfsreglu Flugleiða sem mælir fyrir um að einstaklingar í hjólastól hafi með sér fylgdarmann þegar þeir ferðast með vélum fyrirtækisins. Lesa meira

1.11.2001 : Samningur VoiceEra í Bolungavík og ÖBÍ

Arnþór Helgason, framkvæmdastjóri ÖBÍ (t.v.) og Hallur Hallsson, forstjóri VoiceEra (t.h) við undirritun samnings um samstarf vegna þróunar raddstýrðs búnaðar sem nýst getur fötluðum.
Fyrirtækið VoiceEra í Bolungavík og Öryrkjabandalag Íslands gerðu fyrir nokkru með sér samning um samstarf vegna þróunar raddstýrðs búnaðar sem nýst getur fötluðum. VoiceEra hefur að undanförnu unnið að gerð slíks búnaðar sem nýst getur ýmsum stofnunum svo sem bönkum og stórfyrirtækjum. Búnaðurinn gerir fólki kleift að nýta sér þjónustu stofnananna með röddinni einni saman. Lesa meira

1.11.2001 : Lífið breyttist á svipstundu

Umferðarslys á Íslandi eru fjölmörg og afleiðingar þeirra skelfilegar oft á tíðum. Hafa mörg þeirra orðið til þess að breyta á svipstundu lífi fólks. Þannig var það hjá Kristjáni Gunnarssyni 5. desember árið 1998. Kristján, sem var þá 36 ára gamall, var að koma af bílasýningu á Akureyri ásamt starfsfélaga sínum hjá Heklu. Á leiðinni til Reykjavíkur lenti bifreið þeirra á hálkubletti með þeim afleiðingum að hún fór utan vegar og valt. Sjötti hryggjaliðurinn brotnaði hjá Kristjáni og síðan þá hefur hann ekki geta gengið en er bundinn við hjólastól. Lesa meira

31.10.2001 : 21 látnir í 17 umferðarslysum það sem af er árinu

Það sem af er þessu ári hafa tuttugu og einn, fjórtán karlar og sjö konur, látist í umferðinni í sautján slysum. Ellefu hinna látnu voru 24 ára eða yngri. Lesa meira

24.10.2001 : Sameiginlegur framboðslisti lífeyrisþega

Rætt er um framboð meðal öryrkja en ný skoðanakönnun sýnir að landsmenn eru jákvæðir gagnvart sérframboði eldri borgara. Garðar Sverrisson, formaður Öryrkjabandalags Íslands, segir að litlu hafi munað að boðinn yrði fram sameiginlegur listi lífeyrisþega fyrir síðustu kosningar. Lesa meira


Flýtival