Fréttir

Fyrirsagnalisti

10.12.2003 : Samþykkt aðalstjórnar ÖBÍ

Fundur aðalstjórnar ÖBÍ, haldinn miðvikudaginn 10. desember 2003, samþykkir eftirfarandi: Lesa meira

26.11.2003 : Áríðandi yfirlýsing

Öryrkjabandalag Íslands fordæmir harðlega þá fyrirætlun ríkisstjórnarinnar að standa ekki við samning sinn við öryrkja nú á Evrópuári fatlaðra.

Lesa meira

20.11.2003 : Fötlunarfræði

Komin er út bókin Fötlunarfræði: Nýjar íslenskar rannsóknir. Þetta er fyrsta ritið sem birtist hér á landi um hina nýju fræðigrein fötlunarfræði. Markmið bókarinnar er að kynna fötlunarfræði sem nýja fræðigrein og bæta úr brýnni þörf fyrir íslenskt lesefni á þessu sviði. Jafnframt er hér um að ræða fyrsta ritsafn íslenskra rannsókna um líf og aðstæður fatlaðs fólks í íslenskum samtíma. Lesa meira

15.11.2003 : Samningur á milli Öryrkjabandalags Íslands og World for 2 um afslátt til handa 75% öryrkjum

Mynd: Til vinstri Arnar Arnarsson, framkvæmdastjóri World for 2 og Arnþór Helgason,  framkvæmdastjóri ÖBÍ (t.h.) undirrita samning um afslátt til öryrkja á afsláttarkorti Wf2.
Öryrkjabandalag Íslands og World for 2 hafa gert með sér samning sem veitir handhöfum örorkukorts frá Tryggingastofnun ríkisins 52% afslátt af verði áskriftarkorta fyrirtækisins. Í samningnum er m.a. gert ráð fyrir því að Öryrkjabandalag Íslands leiti eftir staðfestingu á örorku þeirra handhafa örorkukortsins sem sækja um kort gegnum internetið eða með símtali. Lesa meira

28.10.2003 : Meirihluti ósáttur í öryrkjamálinu

Fjórir af hverjum fimm landsmönnum sem taka afstöðu eru ósáttir við framgang ríkisstjórnarinnar í öryrkjamálinu samkvæmt nýrri skoðanakönnun Fréttablaðsins. Málið hefur vakið hörð viðbrögð, sérstaklega í kringum tvær dómsuppkvaðningar í Hæstarétti. Konur eru ósáttari við framgöngu ríkisstjórnarinnar en karlar. 85% kvenna sem taka afstöðu eru ósátt en 77% karla. Munurinn á afstöðu fólks milli landsbyggðar og höfuðborgarsvæðis er hins vegar varla merkjanlegur. Lesa meira

9.10.2003 : Ályktun aðalfundar Öryrkjabandalags Íslands, 9. október 2003

Aðalfundur Öryrkjabandalags Íslands, haldinn fimmtudaginn 9. október 2003, fagnar því samkomulagi sem náðst hefur við ríkisstjórn Íslands um hið nýja kerfi örorkulífeyris sem tekið verður upp frá og með 1. janúar næstkomandi. Með kerfisbreytingu þessari er hin margvíslega sérstaða öryrkja viðurkennd í verki. Fyrir það pólitíska raunsæi eiga íslensk stjórnvöld þakkir skildar. Lesa meira

7.10.2003 : Gengur þvert á gefin loforð ráðuneytis

Í fjárlagafrumvarpinu fyrir árið 2004 kemur m.a. fram að áformað sé að lengja þann tíma sem getur liðið á milli þess að veita styrki til endurnýjunar á bifreiðakaupum hreyfihamlaðra. Endurnýjunin hefur til þessa verið á fjögurra ára fresti en að sögn Jóns Kristjánssonar heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra stendur til að lengja hann í sex ár. Garðar Sverrisson, formaður Öryrkjabandalags Íslands, segir að þessi áform komi sér verulega á óvart, þau gangi þvert á gefin loforð í viðræðum og séu ekki í anda þeirra viðræðna sem átt hafi sér stað við heilbrigðisráðuneytið. Lesa meira

2.10.2003 : Öryrkjar tilbúnir að fara til Strassborgar

Í fyrramálið tekur Hæstiréttur fyrir mál öryrkja gegn íslenska ríkinu. Þar er þess krafist að staðið verði við fyrri dóm Hæstaréttar þar sem úrskurðað var að ríkinu hafi verið óheimilt að skerða tekjutryggingu öryrkja vegna tekna maka þeirra. Málið olli á sínum tíma mikilli pólitískri ólgu enda féllst rétturinn á að ríkið hefði brotið á rétti öryrkja. Lesa meira

29.9.2003 : Vigdís Finnbogadóttir verndari norrænna táknmála

Vigdís Finnbogadóttir, fyrrverandi forseti Íslands, var gerð að sérstökum verndara táknmála á Norðurlöndum á alþjóðadegi heyrnarlausra á laugardag. Bindur Norðurlandaráð heyrnarlausra miklar vonir við að ná fram baráttumálum sínum með Vigdísi innan sinna raða. Alþjóðadagurinn var haldinn hátíðlegur í hátíðarsal Háskóla Íslands á laugardag. Lesa meira

19.6.2003 : Fatlaðir eru ekki "sérstakir"

Mynd: Elspeth Morrison
Fjölmiðlamenn verða að hlusta eftir því hvernig fatlaðir vilja að fjallað sé um fötlun í fjölmiðlum. Kristján Geir Pétursson ræddi við Elspeth Morrison, sérfræðing í málefnum fatlaðra, um hvað ber að varast í fréttaflutningi, á ráðstefnu um fjölmiðla og fatlaða sem haldin var í Aþenu á dögunum. Lesa meira

11.4.2003 : Um 7 til 10% þjóðarinnar búa við fátækt

Mynd: Harpa Njálsdóttir
Um 7 til 10% landsmanna lifa og búa við fátækt, að sögn Hörpu Njáls, en í gær kom út bók hennar Fátækt á Íslandi við upphaf nýrrar aldar, sem Borgarfræðasetur gefur út í samvinnu við Háskólaútgáfuna. "Meginniðurstaðan er sú að fátækt er staðreynd á Íslandi," segir Harpa. Lesa meira

11.4.2003 : Frambjóðendur, ekki meir, ekki meir!

Stjórnmálamenn með slæma samvisku hafa nú, eina ferðina enn, brugðið á það ráð að halda því blákalt fram að kaupmáttur lægstu bóta hafi hækkað langt umfram almennan kaupmátt í landinu. Sannleikurinn er hins vegar sá að frá marsmánuði 1995 til marsmánaðar 2003 hefur kaupmáttur almennra launa aukist 50% umfram kaupmátt grunnlífeyris og óskertrar tekjutryggingar. Lesa meira

5.4.2003 : Væntingar Öryrkjabandalagsins á Evrópuári fatlaðra

Mynd: Arnþór Helgason
Öryrkjabandalag Íslands fagnar því að samkomulag skuli hafa náðst við stjórnvöld um úrbætur í málefnum fatlaðra. Samkvæmt samkomulagi við félagsmálaráðherra og heilbrigðis- og tryggingaráðherra verður staðið við áætlun stjórnvalda um að útrýma biðlistum eftir húsnæði og þjónustu og grundvallarbreytingar gerðar á grunnlífeyri öryrkja. Þá felst einnig í samkomulaginu að gerðar verði ráðstafanir til þess að efla endurhæfingu hér á landi. Öryrkjabandalag Íslands og félög þess hafa um árabil verið frumkvöðlar á sviði starfsendurhæfingar. Má sem dæmi nefna skóla SÍBS á Reykjalundi og Starfsþjálfun fatlaðra, síðar Hringsjá, sem Öryrkjabandalagið hefur rekið í samvinnu við stjórnvöld frá árinu 1987. Lesa meira

25.3.2003 : Samkomulag um að bæta hag ungra öryrkja sérstaklega. Allt að tvöföldun grunnlífeyris

Jón Kristjánsson, heilbrigðis-og tryggingamálaráðherra, og Garðar Sverrisson, formaður Öryrkjabandalags Íslands hafa, fyrir hönd ríkisstjórnar og Öryrkjabandalagsins, gert samkomulag um hækkun grunnlífeyris öryrkja frá 1. janúar 2004. Er með samkomulaginu komið sérstaklega til móts við þá sem verða öryrkjar snemma á lífsleiðinni, en gert er ráð fyrir allt að tvöfaldri hækkun grunnlífeyris til þeirra sem yngstir verða öryrkjar. Lesa meira

20.3.2003 : Nýjar reglur um hjálpartæki

Hér er um heildarendurskoðun á reglunum að ræða og mjög víða hefur verið breytt frá þeim gömlu. Almennar reglur og upplýsingar um úthlutun hjálpartækja eru ítarlegri en þær voru áður (kafli I, bls. 6-10). Lesa meira


Flýtival