Fréttir

Fyrirsagnalisti

15.12.2004 : Djákni ráðinn til starfa til þess að sinna málefnum fatlaðra

Frá vinsitri, séra Bjarni Karlsson, Guðrún Kristín Þórsdóttir, djákni, Ragnheiður Sverrisdóttir, fulltrúi Biskupsstofu, Arnþór Helgason, framkvæmdastjóri ÖBÍ og Sigurbjörn Þorkelsson, formaður sóknarn
Guðrún Kristín Þórsdóttir, djákni, hefur verið ráðin í hálft starf við Lauganeskirkju til þriggja ára. Hlutverk hennar verður að sinna sálgæslu við íbúa húsanna við Hátún 10 og 12 auk annarra starfa sem tengjast aðstoð við þá. Starf hennar er sameiginlega kostað af Lauganeskirkju, Biskupsstofu og Öryrkjabandalagi íslands. Lesa meira

22.11.2004 : Vefur Íslandsbanka fyrstur til að fá vottun fyrir aðgengi fatlaðra

Mynd: Jón Þórisson, aðstoðarforstjóri Íslandsbanka og Arnþór Helgason, framkvæmdastjóri ÖBÍ
Vefur Íslandsbanka, www.isb.is, er fyrstur íslenskra vefja til að vera vottaður fyrir aðgengi fatlaðra af Sjá viðmótsprófunum og Öryrkjabandalagi Íslands. Við hönnun vefsins var m.a. leitast við að koma til móts við þarfir blindra og sjónskertra, sem nota sérstaka vefskoðara við tölvunotkun. Lesa meira

13.10.2004 : Að efna samninga

Enn er ágreiningur á milli ríkisstjórnarinnar og Öryrkjabandalags Íslands um það, hvort staðið hafi verið við samkomulag Jóns Kristjánssonar heilbrigðisráðherra og ÖBÍ frá því í marz í fyrra. Lesa meira

10.10.2004 : Fjölgun öryrkja

Garðar Sverrisson, formaður ÖBÍ
Í aðdraganda síðustu kjarasamninga þurftum við að sitja undir þeim fréttaflutningi að öryrkjar væru að sliga lífeyrissjóðina enda væru öryrkjar nú orðnir mun fleiri en áætlanir sjóðanna hefðu gert ráð fyrir. Lesa meira

26.8.2004 : Íslenskur talgervill fyrir farsíma

Fyrirtækið Örtækni, sem er í eigu Öryrkjabandalags Íslands, hefur hafið sölu á forriti sem nefnist Mobile Speak (Farsímatal) frá spænska fyrirtækinu Code Factory. Lesa meira

11.6.2004 : Íslenskumælandi talgervill í farsíma

Mynd: Hartmann Kr. Guðmundsson, forstöðumaður Örtækni, segir
Í sumarlok er von á íslenskumælandi talgervli í farsíma sem gagnast getur blindum og sjónskertum. Með hjálp búnaðarins geta blindir og sjónskertir þá nýtt sér til fulls þá kosti sem farsímatæknin hefur í för með sér, svo sem SMS eða MMS smáskilaboð sem síminn les þá upphátt fyrir notandann. Lesa meira

16.3.2004 : Íslendingar taki upp tilskipun gegn mismunun á vinnumarkaði

Mynd: Helgi Hjörvar
HELGI Hjörvar, þingmaður Samfylkingarinnar, sagði í fyrirspurnartíma á Alþingi í gær að Íslendingar hefðu lagt lykkju á leið sína til að varna því að tilskipun Evrópusambandsins, sem fjallar um mismunun á vinnumarkaði, hafi verið tekin upp í samningnum um Evrópska efnahagssvæðið. Tilskipunin er að sögn Helga almennur lagarammi gegn mismunun á vinnumarkaði vegna fötlunar, aldurs, kynferðis, kynhneigðar og trúar. Henni væri ætlað að koma í veg fyrir að þessi atriði hefðu áhrif á ráðningar, starfsframa og brottrekstur launafólks. Lesa meira

13.2.2004 : Morgunblaðið fær viðurkenningu Öryrkjabandalags Íslands fyrir aðgengi að upplýsingum

Öryrkjabandalag Íslands veitti Morgunblaðinu viðurkenningu í gær fyrir margvíslegt frumkvæði og forystu um að gera íslenskt dagblað aðgengilegt öllum þjóðfélagshópum. Lesa meira

28.1.2004 : Atvinnuleysi og örorkubætur

Davíð Oddsson forsætisráðherra hefur síðustu daga verið með hálfkveðnar vísur, nánast dylgjur um öryrkja. Ástæðan fyrir því að þeim hafi fjölgað gæti verið sú að hjá Tryggingastofnun væru menn úrskurðaðir öryrkjar á einhvern frjálslegri hátt en áður tíðkaðist. Þarna er Davíð Oddsson á villigötum. Sú spurning sem hann ætti að vera að velta fyrir sér er hvernig á því standi að á Íslandi hafa til mjög langs tíma verið hlutfallslega færri öryrkjar en á hinum Norðurlöndunum. Lesa meira


Flýtival