Fyrirsagnalisti
23.12.2009
:
Öryrkjabandalag Íslands óskar öllum landsmönnum gleðilegra jóla!
Öryrkjabandalag Íslands furðar sig á dómi Hæstaréttar NR.665/2008, sem kveðinn var upp þann 17. desember sl. ÖBÍ íhugar alvarlega að leita með mál Margrétar til Mannréttindadómstóls Evrópu.
Lesa meira
Gildi lífeyrissjóður var sýknaður af kröfu Margrétar Ingibjargar Marelsdóttur í Hæstarétti fyrr í dag.
Lesa meira
Í dag 17. desember kl. 16.00, verður upp kveðinn dómur í Hæstarétti í máli Margréti Ingibjörgu Marelsdóttur gegn Gildi lífeyrissjóði. Þá skýrist hvort þúsundir lífeyrisþega fá leiðréttingu sinna mála gagnvart lífeyrissjóðum þeim sem skertu eða felldu niður greiðslur örorkulífeyris til þeirra árin 2007, 2008 og 2009.
Lesa meira
Úrskurðarnefnd almannatrygginga hefur úrskurðað í máli einstaklings sem varð fyrir því að greiðsla hans á örorkulífeyri frá TR var lækkuð úr 98% í 20,37% í maí sl. Ástæða breytinganna var að TR tók að túlka lög um útreikning búsetuhlutfalls á annan hátt. Úrskurðarnefnd hefur nú komist að þeirri niðurstöðu að TR hafi ekki haft lagastoð til að til að breyta útreikningum þar sem engar breytingar hefðu orðið á lögum.
Lesa meira
Tekjuáætlun TR vegnar ársins 2010 er komin inn á þjónustuvefinn www.tryggur.is en hún er ekki send út á pappírsformi að þessu sinni fyrir jól. Hægt er að breyta tekjuáætlun vegna janúargreiðslu 2010 fram til 14. desember nk.
Lesa meira
Ráðstefnugestir á „Notendastýrð persónuleg aðstoð – tálsýn eða veruleiki ?“ samþykktu áskorun til Alþingis og ríkisstjórnar, að tryggja með lögum rétt fatlaðs fólks til notendastýrðrar persónulegrar aðstoðar (NPA) í anda hugmyndafræðinnar um sjálfstætt líf.
Lesa meira
Hvatningarverðlauna ÖBÍ 2009 voru veitt í dag á alþjóðlegum degi fatlaðra.
Lesa meira
Skorað er meðal annars á félags- og tryggingamálaráðherra grípa til aðgerða fyrir ungt fólk í atvinnuleit.
Lesa meira
Út er komið 2. tbl. tímarits ÖBÍ fyrir árið 2009. Þar eru m.a. greinar sem fá samheitið "Breiðu bökin" þar sem fjallað er um þær skerðingar sem öyrkjar hafa orðið fyrir vegna kreppunnar og reynslusögur af stöðu einstaklingasagðar.
Lesa meira
Prófmál það sem ÖBÍ höfðaði fyrir Margréti Ingibjörgu Marelsdóttur gegn Gildi lífeyrissjóði verður tekið fyrir í Hæstarétti mánudaginn 30. nóvember nk. kl. 9.00.
Lesa meira
Stjórnarnefnd um málefni fatlaðra samþykkti ályktun um búsetumál fatlaðra á fundi sínum þann 25. september sl. Ályktunin ásamt greinargerð var send félags- og tryggingamálaráðherra í október.
Lesa meira
Verkefnisstjórn um endurskoðun almannatrygginga hefur skilað skýrslu með tillögum sínum til Árna Páls Árnasonar, félags- og tryggingamálaráðherra.
Lesa meira
Tvei voru í kjöri Guðmundur sem hlaut 43 atkvæði og Sigursteinn R. Másson sem hlaut 30 atkvæði.
Lesa meira
Kennsla í notkun hvíta stafsins á Háskólatorgi við Háskóla Íslands kl. 11-13 og í Kringlunni kl. 16-18.
Lesa meira
Á fundi Almannaheilla, samtaka þriðja geirans, þann 8. október síðastliðinn var eftirfarandi ályktun samþykkt
Lesa meira
Á föstudag fékk ÖBÍ nokkrar innhringingar fólks sem borist hafði bréf Greiðslustofu lífeyrissjóð þar sem þeim var tilkynnt um niðurfellingu eða skerðingu örorkulíseyris frá sínum lífeyrissjóði.
Lesa meira
Á fundi aðalstjórn Öryrkjabandalags Íslands, 7. október 2009, var eftirfarandi ályktun samþykkt samhljóða.
Lesa meira
Bein heildarútgjöld heimilis vegna heilbrigðismála jukust að raungildi um 29% á tímabilinu frá 1998 til 2006.
Lesa meira
Lilja Þorgeirsdóttir framkvæmdastjóri ÖBÍ skrifar grein sem birtist íí Fréttablaðinu síðastliðinn laugardag og birtist hér í heild sinni.
Lesa meira
Námsstyrkir til blindra og sjónskertra stúdenta í HÍ
Lesa meira
Í bréfi til heilbrigðisráðherra mótmæltir ÖBÍ þeim breytingum á greiðsluþátttöku öryrkja og ellilífeyrisþega í sjúkra-, iðju- og talþjálfun sem komu til framkvæmda í dag, 1. október.
Lesa meira
Hvatningarverðlaun ÖBÍ verða veitt 3. desember nk. Óskað er eftir tilnefningum!
Lesa meira
Segir Embla Ágústdóttir heimsmethafi í flugsundi og mest hreyfihamlaða sundkona sem hefur æft til þessa hérlendis. Sjálfstyrkingarnámskeið fyrir hreyfihamlaðar stelpur á aldrinum 10-15 sem hún hefur skipulagt með nokkrum öðrum hefst brátt.
Lesa meira
Evrópumeistaramót fatlaðra í sundi fer fram í Laugardalslauginn dagana 15.-25. október næst komandi.
Lesa meira
Um síðastliðin mánaðamót sendi TR lífeyrisþegum endurreikning á bætur 2008. Þá fengu margir lífeyrisþegar endurkröfur, sumir vegna ranglega skráðra verktakalauna.
Lesa meira
Hægt er að heita á hlaupara í Reykjavíkurmaraþoni og sú fjárhæð kemur því félagi til góða sem hann hleypur fyrir. Fjöldi hlaupar hafa heitið á aðildarfélög ÖBÍ, skoðið listann, taki þátt og styrkið gott málefni um leið!
Lesa meira
Á aðalfundi ÖBÍ sem haldinn verður 24. október nk. er ljóst að barátta verður um formannssætið.
Lesa meira
Skýrsla starfshóps heilbrigðisráðuneytis um sálfélagsleg viðbrögð við efnahagskreppunni.
Lesa meira
Á hátíðarsamkomu Blindrafélagsins sem haldin var í tilefni af 70 ára afmæli félagsins var Samfélagslampi Blindrafélagsins veittur Bónus og Reykjavíkurborg.
Lesa meira
Á aðalstjórnarfundi ÖBÍ sem haldinn var 12 ágúst sl. kynnti formaður verkefnastjórnarinnar, prófessor Stefán Ólafsson, drög að skýrslu um endurskoðun almannatrygginga.
Lesa meira
Á fundi aðalstjórnar ÖBÍ, í gær, tilkynnti Halldór Sævar Guðbergsson að hann gæfi ekki kost á sér til formanns á komandi aðalfundi ÖBÍ í október.
Lesa meira
Þeir sem leita til bæklunarlækna þurfa því ekki lengur að greiða læknismeðferð að fullu og óska síðan eftir endurgreiðslu.
Lesa meira
Nokkrar undanþágur gilda um greiðslu útvarpsgjalds þar á meðal vegna þeirra sem dvelja á dvalarheimilum.
Lesa meira
Gistisamningur milli Fosshótela og Öryrkjabandalags Íslands.
Lesa meira
Upplýsingar um allt það sem er ókeypis og/eða mjög ódýrt á Íslandi í dag.
Lesa meira
Öryrkjabandalag Íslands (ÖBÍ) og Landssamband eldri borgara (LEB) sendi frá sér sameiginlega ályktun þann 29. júlí sl.
Lesa meira
Á fundi aðalstjórnar ÖBÍ 1. júlí 2009 var eftirfarandi ályktun samþykkt samhljóða.
Lesa meira
ÖBÍ og Landssamband eldri borgara hvetja alla sem vettlingi geta valdið til að mæta á þingpalla og fylgjast með umræðum um frumvarpið sem hefst í dag um kl. 14.00.
Lesa meira
Öryrkjabandalag Íslands skilaði umsögn um frumvarp til laga um ráðstafanir í ríkisfjármálum inn á nefndasvið Alþingis í gær.
Lesa meira
Samtök um sjálfstætt líf (e. Independent Living movement) voru stofnuð hér á landi á þjóðhátíðardaginn 17. júní 2009 af hópi fatlaðs fólks, en Sjálfsbjörg, ÖBÍ og Þroskahjálp hafa stutt við framtakið ásamt starfsfólki í fötlunarfræðinni við HÍ.
Lesa meira
Öryrkjabandalag Íslands mótmælir þeim kjaraskerðingum sem koma fram í frumvarpi til laga um ráðstafanir í ríkisfjármálum, þar sem lagðar eru auknar álögur á öryrkja í formi „lágtekjuskatts“, sem taki gildi 1. júlí næstkomandi.
Lesa meira
Aðalstjórn Öryrkjabandalags Íslands mótmælir lágtekjusköttum í ályktun sinni sem samþykkt var samhljóma á fundi stjórnar í gærkvöldi (10. júní )
Lesa meira
Þátttakendur árlegrar ráðstefnu Workability Europe, evrópusamtaka þjónustufyrirtækja og vinnuveitenda fatlaðra einstaklinga, lýsa yfir áhyggjum sínum vegna áhrif efnahagskreppurnar á atvinnuhorfur fatlaðra einstaklinga.
Lesa meira
upplýsingar um það sem er ódýrt eða ókeypis í samfélaginu.
Lesa meira
Skrifstofa ÖBÍ og Brynju hússjóðs ÖBÍ verður eingöngu opin frá 9.00 til 13.00 á föstudögum í sumar.
Lesa meira
Í nýlegri ályktun Umferðarráðs beinir ráðið þeim tilmælum til sveitarfélaga og umferðaryfirvalda að bæta merkingar og aðgengi á bílastæðum fatlaðra.
Lesa meira
Nú fer hver að verða síðastur að sækja um í fötlunarfæði HÍ fyrir komandi ár.
Lesa meira
Ársfundur Lífeyrissjóðs Vestfirðinga samþykkti að lækka áunnin réttindi um 12%, einnig var samþykkt hlutfallsleg hækkun greiðslu til þeirra sem voru lífeyrisþegar hjá sjóðnum árið 2008.
Lesa meira
Aðalfundur Kvennahreyfingar Öryrkjabandalags Íslands (ÖBÍ) var haldinn í gær 26. maí.
Lesa meira
Kári Hólmar Ragnarsson stud. jur. varði meistararitgerð sína: Dómstólar geta ekki vikið sér undan því að taka afstöðu -Um vernd efnahagslegra, félagslegra og menningarlegra réttinda fyrir dómstólum, í Lögbergi fyrr í dag.
Lesa meira
Á vegum MND-félagasins er komin út hljóðbók sem hetir "Björt framtíð" um er að ræða safn greina eftir 49 höfunda, þar á meðal forseta Íslands.
Lesa meira
Þann 20. maí sl. útskrifuðust 17 nemendur frá Hringsjá – náms- og starfsendurhæfingu.
Lesa meira
Á morgun 23. maí, mun Tannlæknafélag Íslands og Tannlæknadeild Háskóla Íslands bjóða barnafjölskyldum sem búa við kröpp kjör upp á fría tannlæknaþjónustu.
Lesa meira
Á ársfundi Gildis-lífeyrissjóðs, var samþykkt tillaga um að áunnin réttindi sjóðfélaga verði lækkuð um 10%. Nauðsynlegt er að lífeyrisþegar geri nýja tekjuáætlun til TR ef þeir eiga rétt á greiðslum þaðan.
Lesa meira
Á aðalfundi Hlutverks – Samtaka um vinnu og verkþjálfun 8. maí 2009 var rætt um stöðu atvinnu- og hæfingarmála fatlaðra einstaklinga.
Lesa meira
Nú er ljóst að dagskrá Hæstaréttar fram að réttarhléi þann 16 júní nk. er fullbókuð.
Lesa meira
Ný lög um tímabundna greiðsluaðlögun fasteignaveðkrafa tóku gildi þann 15. maí síðastliðinn.
Lesa meira
Til Öryrkjabandalags Íslands leitaði maður sem lent hafði í alvarlegum veikindum sem leiddu til 75% örorku, hann var með lán hjá LÍN sem hann var krafinn um greiðslur af, þrátt fyrir að vera með lágar tekjur.
Lesa meira
Ráðgjafarstofa um fjármál heimilanna tvöfaldar starfsemi sína og opnar nýja starfsstöð við Sóltún 26, þar getur fólk gengið beint inn af götunni og fengið fyrstu aðstoð frá ráðgjafa.
Lesa meira
22.4.2009
:
Gleðilegt sumar!
Öryrkjabandalag Íslands óskar öllum landsmönnum gleðilegs sumars!
Á síðasti fundi ÖBÍ og Landssamtakanna Þroskahjálpar í fundaröðinni Verjum velferðina!, þann 15. apríl síðastliðinn, svöruðu formenn stjórnmálaflokkanna eða forsvarsmenn þeirra í 5 mínútna framsögu hvernig þeirra flokkur ætlar að verja velferðina eftir kosningar. Þar á meðal var spurt um lífeyri sem hér verður skoðuð nánar af varaformanni og framkvæmdastjóra ÖBÍ.
Lesa meira
Opnunarhátíð Listar án landamæra verður í Iðnó, við Tjörnina kl. 15.00 á sumardaginn fyrsta, þann 23. apríl næstkomandi.
Lesa meira
Fyrsta tölublað Öryrkjabandalags Íslands árið 2009 fór í dreifngu laugardaginn 18. apríl í 57.000 eintökum
Lesa meira
Um 400 manns fylltu Gullteig á Grand hóteli þegar lokafundur ÖBÍ og Þroskahjálpar í fundarröðinn Verjum velferðina! var haldinn sl. miðvikudag þann 15. apríl.
Lesa meira
Sigríður Hanna Ingólfsdóttir, félagsráðgjafi, hefur hafið störf á skrifstofu ÖBÍ í 50% starfshlutfalli.
Lesa meira
Breyting hefur orðið á áður útsendri auglýsingu varðandi lokafund ÖBÍ og Þroskahjálpar í fundaröðinni Verjum velferðina!
Fyrir hönd Borgarhreyfingarinnar mun Þráinn Bertelsson sitja fyrir svörumum í pallborði um áherslur og forgangsröðun í velferðarmálum. Fundurinn verður haldinn í Gullteig, Grand hóteli Reykjavík, miðvikudaginn 15. apríl kl. 20.00-22.00.
Lesa meira
8.4.2009
:
Gleðilega páska!

Starfsfólk ÖBÍ óskar landsmönnum gleðilegra páska!
Á lokafundi ÖBÍ og Þroskahjálpar í fundaröðinni
Verjum velferðina! sitja formenn flokkanna eða þeirra fulltrúi fyrir svörum um áherslur og forgangsröðun í velferðarmálum. Fundurinn verður haldinn í Gullteig, Grand hóteli Reykjavík, miðvikudaginn 15. apríl kl. 20.00-22.00.
Lesa meira
Stjórn Námssjóðs Sigríðar Jónsdóttur auglýsir hér með eftir umsóknum um styrki úr sjóðnum. Umsóknum skal skila til Öryrkjabandalags Íslands, fyrir 10. maí nk.
Lesa meira
Öryrkjabandalag Íslands, Landssamtökin Þroskahjálp og Landssamband eldri borgara hafa sent opið bréf til allra stjórnmálaflokka fyrir hönd lífeyrisþega.
Lesa meira
SJÁ ehf og Öryrkjabandalag Íslands hafa nýverið vottað vefi Blindrafélagsins,
www.blind.is, og Þjónustu- og þekkingarmiðstöðvar fyrir blinda, sjónskerta og daufblinda einstaklinga,
www.midstod.is .
Lesa meira
Velferðarvaktin óskar eftir ábendingum frá stofnunum, félögum eða einstaklingum um málefni sem ætla má að þarfnist skoðunar og varða félagslegar eða fjárhagslegar afleiðingar bankahrunsins fyrir heimilin.
Lesa meira
Blindrabókasafn Íslands (BBÍ) hefur nú framleitt fyrstu TÍT hljóðbók safnsins. TÍT hljóðbækur eru stórt framfaraskref fyrir lesblinda og sjónskerta nemendur á Íslandi. BBÍ hefur gert samning við Danmarks Blindebibliotekum (DBB) um afnot af 17.000 Daisy hljóðbókum.
Lesa meira
Ögmundur Jónasson, heilbrigðisráðherra, hefur sett nýja reglugerð sem tekur gildi fyrsta apríl nk. sem afnemur dagdeildargjöld á heilbrigðisstofnunum, sem sett voru á með reglugerð um síðustu áramót.
Lesa meira
Rúllandi mannréttindagleði ríkti í herbúðum
Hjólastólasveitarinnar þriðjudaginn 3. mars síðastliðinn, þegar hún tók við styrk að upphæð einni milljón króna frá Mannréttindaráði Reykjavíkurborgar.
Lesa meira
Annar fundur í fundarröðinni Verjum velferðina! sem ÖBÍ og Þroskahjálpar standa að og haldinn var 4. mars (í gærkvöldi) á Grand hóteli Reykjavík var vel sóttur. Yfirskrift fundarins var Félagsmál í kreppu – hvað er framundan?
Lesa meira
Öryrkjabandalag Íslands og Landssamtökin Þroskahjálp halda 2. fundinn í fundarröð sinni í aðdraganda Alþingiskosninga, í kvöld, miðvikudaginn 4. mars kl. 20.00-22.00 að Grand hóteli Reykjavík, Sigtúni 38. Yfirskrift fundarins er:
Lesa meira
Hjá ÖBÍ er mikill vilji til að efla starf ungs fólks í aðildarfélögum ÖBÍ og koma á ungliðahreyfingu innan bandalagsins.
Lesa meira
Öryrkjabandalag Íslands og Laugarneskirkja héldu opinn málþing um réttlæti, í safnaðarheimili Laugarneskirkju, 8. febrúar síðastliðinn.
Lesa meira
Á heimsíðu TR hefur verið komið upp táknmálsviðmóti fyrir heyrnarlausa sem veitir upplýsingar um suma málaflokka sjúkra- og almannatrygginga.
Lesa meira
Þjónustumiðstöð Tryggingastofnunar býður nú nýjum örorkulífeyrisþegum í Reykjavík einstaklingsráðgjöf. Þeim verður boðið að koma í viðtal og ræða við þjónusturáðgjafa hjá Tryggingastofnun sem upplýsir hann um réttindi og þjónustuleiðir.
Lesa meira
Innlagnargjöld á spítala sem sett voru á þann 1. janúar síðastliðinn af þáverandi heilbrigðisráðherra hafa verið felld niður.
Lesa meira
Félags- og tryggingamálaráðherra hefur sett tvær reglugerðir um starfsemi Íbúðalánasjóðs. Helstu nýmæli felast í nýjum lánaflokki sem heimilar lánveitingar til endurbóta og viðhalds á leiguíbúðum, rýmri heimildum til að veita fötluðum einstaklingum aukalán vegna sérþarfa.
Lesa meira
Öryrkjabandalag Íslands auglýsir eftir félagsráðgjafa / ráðgjafa á skrifstofu bandalagsins.
Lesa meira
Ályktun fundar aðalstjórnar ÖBÍ 21. janúar 2009
Lesa meira
Eins og greint hefur verið frá hækkaði heilbrigðisráðherra gjaldtöku af sjúklingum um áramótin um leið og tekin voru upp ný gjöld, innlagnargjöld á sjúkrahús. Í flestum tilfella er hækkunin um 15-18%, einstök dæmi sína mun meiri prósentuhækkun. Framkomnar hækkanir munu síðan birtast í vísitölu neysluverðs fyrir janúar og auka enn á verðbólgu í landinu.
Lesa meira
Dæmi hafa borist ÖBÍ, frá lífeyrisþegum, um að verktakagreiðslur skerði bætur almannatrygginga meira en sambærileg upphæð almennra launa. Við eftirgrenslan kom í ljós að svo á ekki að vera, en gæta þarf þess að skráð sé rétt inn á skattframtal viðkomandi. Svar RSK og lögfræðings TR var þetta:
Lesa meira
Einstkalingar með tekjur á bilinu 100 til 574 þúsund krónur á mánuði munu greiða lægra hlutfall tekna sinna í tekjuskatt.
Lesa meira
Fjöldi lífeyrisþega hefur kvartað til ÖBÍ yfir að greiðsluseðlar Tryggingarstofnunar ríkisins hafi ekki borist þeim við fyrstu útborgun örorkulífeyris þessa árs. Þegar skýringa var leitað hjá TR kom í ljós að í sparnaðarskyni er hætt að senda slíka seðla út og vísað á Trygg, rafræna þjónustu TR. Þykir þeim sem kvörtuðu að sér vegið þar sem þeir hafi ekki aðgang að tölvu, eða ekki heimangegnt í aðgang að tölvu, einnig að um einhliða aðgerð sé að ræða.
Lesa meira
Í vikunni sem leið sendi Tryggingastofnun ríkisins út bréf til lífeyrisþega ásamt kröfuyfirlit sem nú eru að berast inn um lúgur lífeyrisþega.
Lesa meira
Frá og með 1. janúar 2009 bíður einstaklinga sem eru svo óheppnir að veikjast eða slasast, nýr glaðningur, þar sem nú mun þurfa að greiða kr. 6.000 fyrir innlögn á sjúkrahús. Lífeyrisþegar munu greiða kr. 3.000.
Lesa meira
Árið 2009 veður persónuafsláttur kr. 42.205 á mánuði en á móti kemur að skattaprósentan hækkar í 37,2%.
Lesa meira
Frá 1. janúar 2009 hækka bætur örorkulífeyrisþega um 9,6%. Lágmarksfjárhæð til framfærslu verður þó aldrei lægra en 180.000 kr.á mánuði fyrir þá sem búa einir og 153.500 kr. fyrir aðra.
Lesa meira
Nýlega var vefur S24 (
www.s24.is) vottaður aðgengilegur af SJÁ og Öryrkjabandalagi Íslands. Fékk vefurinn vottun um forgang 1 og 2.
Lesa meira