Skattaframtal - samspil bóta TR og lífeyrissjóða
TR segir að óþarft sé að tilgreina eftirtaldar bætur TR sérstaklega í skattframtali 2012, því...
...eftirfarandi greiðslur Tryggingastofnunar frá 1. janúar 2011 eru sérstaklega tilgreindar við staðgreiðsluskil:
- Sérstök uppbót til framfærslu (það sem vantar upp á lágmarksgreiðslur).
- Dánarbætur
- Uppbætur á lífeyri
- Uppbætur vegna reksturs bifreiðar
- Mæðra- og feðralaun
- Maka- og umönnunarbætur
Með þessum hætti er lífeyrissjóðum gert kleift að taka ekki ofangreindar greiðslur með sem tekjur lífeyrisþega. Þannig hafa þær ekki áhrif á lífeyrissjóðstekjur til lækkunar.
