Innanríkisráðuneytið hafnar kröfu Blindrafélagsins

27.6.2012

um að blindum verði heimilt að kjósa í einrúmi með aðstoð fulltrúa að eigin vali í yfirstandandi forsetakosningum.

Innanríkisráðuneytið hefur svarað kröfu Blindrafélagsins Var kröfunni hafnað á þeim grundvelli að lög stæðu í vegi fyrir því að framkvæma megi kosningarnar með þeim hætti sem Blindrafélagið legði til. Segir meðal annars í frétt mbl.is um málið.

Vekur ráðuneytið sérstaklega máls á því að með ákvörðun Hæstaréttar um kosningar til stjórnlagaþings hafi sérstaklega verið tekið fram að það væri ekki á færi stjórnvalda að víkja frá skýrum fyrirmælum laga um framkvæmd kosninga sem kveður á um að aðeins fulltrúi kjörstjórnar megi vera blindum til aðstoðar í kjörklefa. Það fyrirkomulag telur Blindrafélagið vera brot á mannréttindum blindra.

Blindrafélagið gerir þá kröfu til Alþingis Íslendinga að þingið breyti kosningalögum í þá veru að tryggt verði að mannréttindi þeirra sem þurfa aðstoð við þátttöku í leynilegum kosningum verði virt og í samræmi við ákvæði í Sáttmála Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks.

Yfirlýsing frá stjórn Blindrafélagsins vegna brota á mannréttindum blinds fólks. Á heimasíðu Blindrafélagsins.

Gera athugasemd við utankjörfundakosningu, af heimasíðu Blindrafélagsins.

Kvíðir því alltaf að fara á kjörstað. sjá frétt á mbl.is


Segðu frá

Flýtival