Stofnfundur félags um fötlunarrannsóknir
Þann 23. nóvember næstkomandi verður stofnfundur félags um fötlunarrannsóknir haldinn að Gullhömrum í Grafarholti.
Á dagskrá fundarins mun Tom Shakespeare, fræðimaður við háskólann í Newcastle, halda erindi um tengsl fötlunarfræða og baráttu fatlaðs fólks. Einnig mun Rannveig Traustadóttir fjalla um Ísland og umheiminn: Fötlunarrannsóknir í alþjóðlegu ljósi. Sjá nánar í dagskrá fundar.
Tengill á síðu Tom Shakespeare hjá Newcastle háskóla.

