Skip to main content
Umsögn

8. mál. Skattleysi launatekna undir 300.000 kr. 2018

By 25. febrúar 2020No Comments
Alþingi                                                                                 
Nefndasvið
Austurstræti 8-12
150 Reykjavík
Reykjavík, 26.10.2018
 
Efni: Umsögn Öryrkjabandalags Íslands (ÖBÍ) um tillögu til þingsályktunar um skattleysi launatekna undir 300.000 kr. Þingskjal 8 – 8. mál.
Í umsögnum ÖBÍ til Alþingis hefur skattlagning lágra tekna, sem engan veginn duga til framfærslu, verið gagnrýnd ítrekað.[1] Undirrituð, fyrir hönd bandalagsins styður því þingsályktunartillöguna sem hér er til umsagnar og leggur áherslu á að hún verði samþykkt. Í umsögn ÖBÍ um fjármálaáætlun 2019-2023 og í umsögn ÖBÍ um ýmsar forsendur frumvarps til fjárlaga fyrir árið 2019 (2. mál) er m.a. lagt til að mánaðartekjur einstaklinga undir 300.000 kr. verði undanþegnar tekjuskatti.
 
Breytingar á skattaumhverfinu á undanförnum árum hafa ekki verið til hagsbóta fyrir örorkulífeyrisþega og annað lágtekjufólk. Skattbyrði þessa hóps hefur aukist mjög mikið. Eins og fram kemur í skýrslu ASÍ, sem vísað er til í greinargerð með þings- ályktunartillögunni, hefur skattbyrði aukist langmest hjá tekjulægstu hópunum.
 
Ein af meginástæðum aukinnar skattbyrði, einkum lágtekjufólks, er að persónu- afsláttur hefur ekki fylgt launaþróun. Hins vegar fylgir uppfærsla fjárhæðarmarka skattþrepa launaþróun, eins og fram kemur í greinargerð með þingsályktunar- tillögunni. Örorkulífeyrisþegar eins og annað lágtekjufólk greiða skatt í neðra þrepi. Persónuafsláttur hefur mest áhrif á þá tekjulægstu þar sem um fasta upphæð er að ræða. Því yrði veruleg hækkun hans mikil kjarabót fyrir lágtekjufólk. Persónuafsláttur árið 2018 er 53.895 kr. Ef hann hefði fylgt launavísitölu, sem var tekin upp árið 1989, væri hann 112.904 kr. á mánuðivegna ársins 2018 og skattleysismörk 305.650 kr. á mánuði. [2]  Í greinargerðinni kemur fram að ef tekjur einstaklinga undir 300.000 kr. verði undanþegnar skatti samsvari það 106.387 kr. persónuafslætti, sem er rétt undir þeirri upphæð sem hann væri ef hann hefði fylgt launavísitölu frá árinu 1989.
 
Lögð er áhersla á að hækkun persónuafsláttar nýtist lágtekjufólki mun betur en lækkun skattprósentu í lægra skattþrepi. Slík aðgerð viðheldur ójöfnuði og raunar eykur hann ójöfnuð.  Hækkun persónuafsláttar er einföld og skilvirk leið til að bæta kjör hinna lægst launuðu, eykur jöfnuð og flækir ekki skattkerfið. Árið 2018 greiða skattgreiðendur tekjuskatt af tekjum yfir 145.945 kr. á mánuði.[3] Einstaklingur með 200.000 kr. tekjur á mánuði greiðir tæpar 20.000 kr. í staðgreiðslu.
 
Tillagan eykur sérstaklega ráðstöfunartekjur þeirra sem eru á lágum launum á vinnumarkaði eða á lífeyri. Miðgildi heildartekna öryrkja árið 2017 var 293.401 kr. Tekjuskattur af þeirri upphæð var 55.475 kr. Fólki með lágar tekjur munar mikið um þessar krónur.
 
Í greinargerðinni er stuðst við hið dæmigerða neysluviðmið velferðarráðuneytisins, sem er án húsnæðiskostnaðar eftir uppfærslu árið 2012. Neysluviðmiðið var síðast uppfært í febrúar 2017. Á þeim tíma fengu örorkulífeyrisþegar með óskertan lífeyri almannatrygginga að viðbættri heimilisuppbót útborgaðar 229.475 kr. á mánuði en neysluviðmiðið án húsnæðiskostnaðar var (og er) 227.764 kr. Örorkulífeyrisþegum er því ætlað að framfleyta sér á tekjum, sem eru langt undir neysluviðmiðum, þar sem ekki er gert ráð fyrir húsnæðiskostnaði. Hann er í flestum tilvikum stærsti einstaki útgjaldaliður einstaklinga og fjölskyldna.
 
Eins og fram kemur í greinargerðinni eru tekjur sem ekki hrökkva fyrir lágmarksframfærslu skattlagðar. Mjög mikilvægt er að gera sem allra fyrst breytingar á skattlagningu með það að markmiði, eins og fram kemur í greinargerð þingsályktunartillögunnar sem hér er til umsagnar að jafna skattbyrði milli tekjuhópa þannig að hún verði líkari því sem tíðkast annars staðar á Norðurlöndum og „hlífa þeim sem eru með tekjur undir framfærslumörkum við að greiða samfélaginu skatta af þeim tekjum“.  
 
Ekkert um okkur án okkar.
 
Virðingarfyllst,
Þuríður Harpa Sigurðardóttir,
formaður ÖBÍ.

[1] Dæmi um umsagnir síðustu ár: Umsögn ÖBÍ um fjármálaáætlun 2019-2023, umsögn ÖBÍ um fjárlög 2018, umsögn ÖBÍ um fjármálaáætlun 2018-2022, umsögn ÖBÍ um fjárlög 2017.

[2] Uppreiknað til desember 2017.
[3] Ef tekið er tillit til 4% iðgjalds í lífeyrissjóð er upphæðin 151.978 kr. á mánuði.