Skip to main content
Frétt

Hugsað um aðgengið frá byrjun

By 13. mars 2018No Comments

Áslaug Katrín Aðalsteinsdóttir og Berglind Hallgrímsdóttr hlutu aðgengisviðurkenningu Reykjavíkurborgar 2018, en viðurkenningin var afhent á málþingi Öryrkjabandalags Íslands, Stóra Bílastæðamálinu.

Svo til hvert sæti var skipað á málþingi ÖBÍ sem haldið var á Hótel Grand í Reykjavík á mánudag. Fjölmörg fróðleg og skemmtileg erindi voru á dagskrá málþingsins. Meðal annars var fjallað um nýtt merki til að auðkenna bílastæði fyrir fatlað fólk, bílastæði í fjölbýlishúsum, hleðslustöðvar fyrir rafbíla og fleira. En einnig var aðgengisviðurkenning Reykjavíkurborgar 2018 afhent, en það kom í hlut Dags B. Eggertssonar, borgarstjóra. 

Viðurkenninguna í ár hlutu þær Áslaug Katrín Aðalsteinsdóttir og Berglind Hallgrímsdóttir hjá verkfræðistofunni Verkís. Á vef Reykjavíkurborgar segir að þær hafi látið sig aðgengismál varða með ýmsum hætti og upp úr standi tvö veigamikil verkefni: Algild hönnun umferðarmannvirkja – samanburður á norrænum hönnunarreglum, ítarlega úttekt á hönnunarreglum og stöðlum sem lúta að algildri hönnun í útiumhverfi í Svíþjóð, Danmörku og Noregi. Seinna verkefnið, Hönnun fyrir alla í útiumhverfi – handbók, sem styðst við hið fyrra og snýr að gerð handbókar sem löguð er að íslenskum aðstæðum um hönnun fyrir alla í útiumhverfi, þar með talið samgöngumannvirkjum eins og bílastæði fyrir fatlað og hreyfihamlað fólk.

Í rökstuðningi með viðurkenningunni segir: „Það er mikill ávinningur í því fólginn fyrir skipulagsyfirvöld, hönnuði og framkvæmdaraðila að hafa samræmdar leiðbeiningar um góða hönnun sem tekur tillit til allra sem njóta og nýta manngert umhverfi. Því er mikilvægt að veita þeim  viðurkenningu sem stuðla að bættu aðgengi af eigin frumkvæði og um leið hvetja fleiri til dáða.  Áslaug og Berglind eru því vel að Aðgengisviðurkenningu Reykjavíkurborgar komnar og  þær eru öðrum góð fyrirmynd þegar kemur að því að bæta hag og aðstæður fólks svo að allir geti notið sín í því fjölbreytta samfélagi sem við viljum búa í.“