Skip to main content
Frétt

Efling samfélagslegrar nýsköpunar

By 20. nóvember 2019No Comments
Þann 21. nóvember nk. kl. 10:45 í sal Þjóðminjasafnsins mun Lars Hulgaard, prófessor við Háskólann í Hróarskeldu og stofnandi og forstöðumaður „Centre for social innovation in civil society context“ flytja fyrirlestur sem heitir Hlutverk almannaheillasamtaka í félagslegri nýsköpun á Íslandi.

Af sama tilefni verður undirrituð viljayfirlýsing stjórnvalda, Almannaheilla og Háskóla Íslands um að ganga til samstarfs um eflingu samfélagslegrar nýsköpunar. Á grunni viljayfirlýsingarinnar verður unnið sameiginlega að því að skapa félagasamtökum aukna möguleika á að starfa að samfélagslegum umbótum. Gert er ráð fyrir að framlag ríkisins felist í aðstoð og fjárstuðningi við söfnun upplýsinga vegna rannsóknar á umfangi þriðja geirans og frumkvöðlastarfs innan hans, þátttöku í málþingum og öðrum sameiginlegum viðburðum og fjárframlagi til endurútgáfu handbókar um stjórnun og rekstur félagasamtaka. Viljayfirlýsingin er liður í starfi ríkisstjórnarinnar til eflingar á starfi félagasamtaka í samræmi við gildandi stjórnarsáttmála. Hún er einnig í samræmi við nýsköpunarstefnu fyrir Ísland þar sem m.a. kemur fram þörf á hugvitsdrifinni nýsköpun á öllum sviðum samfélagsins.

Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir, ráðherra ferðamála, iðnaðar og nýsköpunar, Jón Atli Benediktsson, rektor Háskóla Íslands og Jónas Guðmundsson, formaður Almannaheilla, samtaka þriðja geirans munu flytja stutt ávörp af þessu tilefni.

Steinunn Hrafnsdóttir, prófessor í félagsráðgjöf við Háskóla Íslands, mun jafnframt ræða hlutverk íslenskra almannaheillasamtaka í félagslegri nýsköpun og Lars Hulgaard fjalla um mikilvægi félagslegra frumkvöðla.

Fundarstjóri verður Ómar H. Kristmundsson, prófessor við Háskóla Íslands.

Dagskrá:
10:00 Setning fundar: Ómar Kristmundsson, prófessor.

10:15 Undirritun viljayfirlýsingar.
Stutt ávörp flytja Þórdís Reykfjörð Gylfadóttir, ráðherra ferðamála, iðnaðar og nýsköpunar, Jón Atli Benediktsson, rektor Háskóla Íslands, og Jónas Guðmundsson, formaður stjórnar Almannaheilla.

10:30 Steinunn Hrafnsdóttir prófessor.
„Hlutverk almannaheillasamtaka í félagslegri nýsköpun á Íslandi.“

10:45 Lars Hulgaard, prófessor við Háskólann í Hróarskeldu og stofnandi og forstöðumaður „Centre for social entrepreneurship, Roskilde University.“
„Social innovation in civil society context”.

11:30 Fundarlok.

Aðgangur er ókeypis og allir áhugasamir velkomnir. 

Sjá viðburðinn hér á facebook.