Skip to main content
Frétt

Komugjöld á heilsugæslu felld niður

By 19. desember 2018No Comments

Hætt verður að innheimta komugjöld af öryrkjum og öldruðum í heilsugæslu og hjá heimilislæknum frá 1. janúar næstkomandi, samkvæmt ákvörðun Svandísar Svavarsdóttur heilbrigðisráðherra, að því er segir í tilkynningu frá velferðarráðuneytinu. Gildir það jafnt hvort sem um er að ræða komu á dagvinnutíma eða á öðrum tímum sólarhringsins. Gjald fyrir vitjanir lækna til aldraðra og öryrkja verður einnig fellt niður. Líkt og áður eru ekki innheimt komugjöld hjá börnum að 18 ára aldri.

„Þetta er mikilvæg aðgerð og liður í stefnu stjórnvalda um að draga úr greiðsluþátttöku sjúklinga vegna heilbrigðisþjónustu og auka á móti framlög hins opinbera. Þetta er einnig í samræmi við þá áherslu að efla hlutverk heilsugæslunnar sem fyrsta viðkomustaðar fólks í heilbrigðiskerfinu“ segir Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra í tilkynningunni.

Öryrkjabandalag Íslands hvetur ráðherrann til að beita sér fyrir því að kostnaður við sálfræðimeðferð verði jafnframt felldur inn í heilsugæsluna og að aðgengi að þessari mikilvægu þjónustu verði aukið til muna.

Þar segir einni að þak hafi verið sett á heildarútgjöld sjúklinga og ýmsar aðrar breytingar gerðar varðandi greiðsluþátttöku fólks fyrir heilbrigðisþjónustu með nýju greiðsluþátttökukerfi árið 2017. Þessi breyting hefur lækkað verulega útgjöld þeirra sem mest þurfa á heilbrigðisþjónustu að halda og stuðlað að auknum jöfnuði meðal notenda heilbrigðiskerfisins. Heildarútgjöld sjúklinga í nýja greiðsluþátttökukerfinu eru um 1,5 milljörðum króna lægri á ársgrundvelli en þau voru áður og lækka enn frekar með niðurfellingu komugjalda öryrkja og aldraðra um áramótin.

ÖBÍ hefur bent á að hlutfallslega þyngri byrðar lenda á öryrkjum í nýja kerfinu en áður og hafa hvatt stjórnvöld til að gera betur.

Komugjöld almennra notenda í heilsugæslunni verða óbreytt að krónutölu á nýju ári og taka því ekki hækkunum í samræmi við breyttar verðlagsforsendur.

Komur öryrkja í heilsugæsluna eru um 55.000 á ársgrundvelli og komur aldraðra um 107.500, miðað við tólf mánaða tímabil frá miðju ári 2017 – 2018, segir í tilkynningunni.