Skip to main content
Frétt

Opinn upplýsingafundur NPA miðstöðvar og Landlæknis

By 26. október 2020No Comments
Upplýsingafundur NPA miðstöðvarinnar í samstarfi við Almannavarnir og Embætti landlæknis verður haldinn þriðjudaginn 27. október kl. 15:00. Yfirskrift fundarins er: Sóttvarnarráðstafanir vegna COVID-19 fyrir fatlað fólk með NPA eða beingreiðslusamninga og aðstoðarfólk þeirra. 

Einstakt tækifæri til að spyrja

Á fundinum gefst einstakt tækifæri til að hlusta á sérfræðinga um kórónaveirufaraldurinn og til að fá svör við þínum spurningum, t.d. spyrja út í notkun á hlífðarbúnaði, rétt viðbrögð við smiti eða sóttkví og hvernig best sé að standa að forvörnum og undirbúningi vegna mögulegra smita. 

Leiðbeiningar útskýrðar á einfaldan hátt

María Rúnarsdóttir, fulltrúi velferðarmála í samhæfingarstöð almannavarna, mun m.a. fara með einföldum hætti yfir helstu atriðin úr útgefnum leiðbeiningum fyrir fatlað fólk vegna COVID-19.

Hér má finna leiðbeiningar til fatlaðs fólks með NPA, aðra notendasamninga og aðstoðarfólk – sóttvarnarráðstafanir vegna COVID-19:

 

Hér er hlekkur á  samantekt upplýsinga, leiðbeininga og fræðslumyndbanda sem nýst geta fötluðu fólki með NPA, beingreiðslusamninga og aðstoðarfólki þeirra vegna COVID-19:

Fyrirspurnir

Hægt er að senda spurningar fyrirfram til npa@npa.is og leitast verður við að svara öllum spurningum sem berast. Einnig verður hægt að senda inn spurningar á meðan á fundinum stendur.

 

Hlekkur til að skrá sig

Um fjarfund er að ræða. Nauðsynlegt er að skrá þátttöku á þessum hlekk og þá berst viðkomandi staðfestingarpóstur sem inniheldur hlekkinn á sjálfan fundinn. Sá hlekkur virkjast 10 mínútum áður en fundurinn hefst.

English speaking persons

English speaking personal assistants are encouraged to attend the meeting. Questions will be answered in English upon request. Here is the brochure „Guidance for disabled people with NPA, other user agreements and their assistants“ – COVID-19 preventive measures“:

 

Fundurinn er öllum opinn en er sérstaklega ætlaður fötluðu fólki með NPA eða beingreiðslusamninga og aðstoðarfólki þeirra. 

Boðið verður upp á táknmáls- og rittúlkun.  

Nauðsynlegt er að skrá sig á fundinn.