Skip to main content
Frétt

Opið fyrir umsóknir um sérstaka styrki ÖBÍ til 15. mars nk.

By 2. mars 2020No Comments
ÖBÍ veitir árlega sérstaka styrki til ýmissa hagnýtra verkefna sem tengjast hagsmunum fatlaðs fólks og öryrkja í samræmi við málefni, markmið og/eða stefnu ÖBÍ. Verkefni sem varða einstök aðildarfélög ÖBÍ falla ekki hér undir. 
  • Með umsókn skal fylgja fjárhags- og verkefnaáætlun með tímasetningum. Hér má finna umsóknareyðublaðið
  • Reglur um úthlutun sérstakra styrkja ÖBÍ og verklag við úthlutun þeirra má finna hér
  • Upplýsingar um verkefni fyrri ára má finna hér

Nánari upplýsingar veitir starfsfólk á skrifstofu ÖBÍ – netfang: mottaka@obi.is eða í síma 530-6700. 


Umsóknarfrestur er til 15. mars 2020