Skip to main content
Frétt

Takmarkað aðgengi að skrifstofu ÖBÍ

By 17. mars 2020No Comments
Í kjölfarið á samkomubanni yfirvalda, sem er liður í sóttvarnaráætlun, hefur verið tekin ákvörðun um takmarkað aðgengi að skrifstofu ÖBÍ. Símsvörun verður með óbreyttum hætti, og við hvetjum fólk til að hringja frekar en koma.

Starfsfólki hefur verið skipt upp í 2 hópa, og vinnur annar hópurinn heima viku í senn.

Inngangur er nú læstur, en við bendum á bjöllu við hann.

Áfram verður hægt að bóka tíma í ráðgjöf, en á meðan þetta ástand varir, verður hún veitt í gegnum síma. Þurfir þú að koma gögnum til okkar, og hefur ekki möguleika á að koma þeim rafrænt, skaltu ræða það við okkur hvernig best er að koma gögnum til okkar. En við mælum með að þú nýtir þér til að mynda snjallsíma til að skanna þau skjöl sem við þurfum að fá. Seinna er svo hægt að koma þeim til okkar á annan hátt, ef þörf er á.

Síminn er 530 6700, eða þú getur sent okkur tölvupóst á mottaka@obi.is

Við takmörkum einnig alla fundi, og nýtum okkur fjarfundabúnað fyrir þá fundi sem þurfa að fara fram.

Þessar ráðstafanir eru gerðar með heilsu okkar allra að leiðarljósi, og til að við getum haldið sem mest óbreyttu starfi áfram.